Fótbolti

Argentínskur landsliðsmaður hjá PSG missti tvo vini í París

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Javier Pastore og Lionel Messi.
Javier Pastore og Lionel Messi. Vísir/Getty
Tveir vinir argentínska landsliðsmannsins Javier Pastore voru meðal fórnarlambanna í hryðjuverkunum í París föstudagskvöldið 13. nóvember 2015.

Vinir Pastore átti veitingastað nærri heimili Javier Pastore í París og þeir voru meðal þeirra sem létust í Bataclan-leikhúsinu.

Javier Pastore er öflugur leikmaður sem hefur verið í stóru hlutverki hjá Paris Saint-Germain undanfarin ár. Pastore er með 1 mark og 3 stoðsendingar í átta deildarleikjum á þessu tímabili en hefur enn ekki komið að marki í Meistaradeildinni.

Javier Pastore sagði frá þessu í viðtali við argentínska sjónvarpsstöð en hann var staddur heima í Argentínu þar sem hann tók þátt í landsleikjum í undankeppni HM.

„Ég á tvo vini sem dóu í Frakkklandi. Þeir bjuggu þremur húsaröðum frá mínu heimili og fóru á þessa tónleika," sagði Javier Pastore við argentínsku sjónvarpsstöðina Teleocho.

„Ég er í miklu uppnámi vegna þessa atburða. Þetta hefur ekki aðeins áhrif á Frakklandi heldur allan heiminn. Það verður ekki auðvelt að snúa aftur til Parísar," sagði Javier Pastore.

„Ég verð að fara til baka því ég vinna þarna og ég hef mínar skyldur. Þetta mun taka á," sagði Pastore.

„Ég er mjög feginn að kona mín og dóttir búa á Ítalíu," sagði Pastore.

Javier Pastore er 26 ára gamall sókndjarfur miðjumaður sem hefur spilað með Paris Saint-Germain frá 2011. Hann var þar á undan í tvö ár hjá ítalska félaginu Palermo.

Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×