Fótbolti

Ég sendi dönsku þjóðina á eftirlaun

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zlatan fagnar seinna marki sínu í kvöld.
Zlatan fagnar seinna marki sínu í kvöld. vísir/getty
Svíinn Zlatan Ibrahimovic var borubrattur eftir að hafa tryggt Svíum sæti á EM á Parken í kvöld.

Zlatan skoraði tvö falleg mörk í leiknum og þau voru nóg fyrir farseðlum til Frakklands.

Sjá einnig: Zlatan skaut Svíum á EM | Myndband af mörkunum

Svíinn hávaxni er þekktur fyrir allt annað en auðmýkt og lítillæti og hann sýndi sínar bestu hliðar eftir leik líka.

„Danir ætluðu að senda mig á eftirlaun en ég sendi alla dönsku þjóðina í staðinn á eftirlaun," sagði Zlatan brattur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×