Fótbolti

Gagnrýnir þjálfunaraðferðir hjá Arsenal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aaron Ramsey.
Aaron Ramsey. Vísir/Getty
Aaron Ramsey, miðjumaður Arsenal og velska landsliðsins, fór meiddur af velli í Meistaradeildarleik Arsenal og Bayern München á þriðjudagskvöldið og einn þjálfari er ekki alveg sáttur við skýringu Arsene Wenger á meiðslunum.

Raymond Verheijen, fyrrum aðstoðarþjálfari Wales og Hollands, taldi sig tilneyddan til að taka upp hanskann fyrir þjálfarateymi velska landsliðsins eftir að Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, kenndi velska landsliðinu um meiðsli Ramsey.

Aaron Ramsey spilaði allan leikinn og skoraði annað marka Wales í 2-0 sigri á Andorra í undankeppni EM 13. október síðastliðinn.  Wales var búið að tryggja sér sæti á EM í Frakklandi fyrir leikinn.

Ramsey meiddist aftan í læri í leiknum á móti Bayern München og fór af velli á 57. mínútu. Þegar hann lagðist í grasið og kallaði á hjálp þá hugsuðu örugglega margir stuðningsmenn Arsenal: „Ekki einu sinni enn“.

Aaron Ramsey verður frá í nokkrar vikur vegna meiðslanna en Wenger kennir því um að hann hafi verið látinn spila í 90 mínútur í landsleiknum á móti Andorra, leik sem skipti Wales litlu máli.

„Á hverju tímabili eru sex eða sjö leikmenn Arsenal  að detta út í margar vikur eða mánuði vegna meiðsla," sagði Raymond Verheijen í viðtali við BBC Wales Sport.

"Það hlýtur að segja okkur að eitthvað sé í ólagi með þjálfunaraðferðirnar hjá Arsenal. Þessir ungu leikmenn eru látnir æfa of mikið sem þýðir að líkamar þeirra gefa sig undan álaginu," sagði Verheijen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×