Fótbolti

Glódís og stöllur náðu aðeins jafntefli gegn Linköpings

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Glódís, hér fyrir miðju, fagnar marki með liði sínu.
Glódís, hér fyrir miðju, fagnar marki með liði sínu. Vísir/Vilhelm
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í Eskilstuna náðu aðeins jafntefli gegn Linköpings á heimavelli í 21. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.

Fyrir vikið er Rosengard með eins stigs forskot á Eskilstuna fyrir lokaumferðina sem fer fram um næstu helgi.

Eftir 5-0 sigur Rosengard á AIK í dag þurfti Eskilstuna á sigri að halda til þess að halda toppsætinu þegar ein umferð er eftir.

Ekkert mark kom í leikinn en það þýðir að Eskilstuna þarf að treysta á að Linköpings taki stig gegn Rosengard í lokaumferðinni á sama tíma og þær sigri leikinn gegn Göteborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×