Fótbolti

Enn eitt tapið hjá Bandaríkjamönnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í nótt.
Úr leik liðanna í nótt. vísir/getty
Bandaríkjamenn mátti sætta sig við tap gegn Kosta Ríka í gær, 1-0.

Það var Joel Campbell, leikmaður Arsenal, sem skoraði eina mark leiksins á Red Bull Arena. Um var að ræða vináttulandsleik.

Þetta var fjórða tap bandaríska liðsins í síðustu sex leikjum og ekki beint besta veganestið fyrir leiki í undankeppni HM í næsta mánuði.

Bandaríska liðið var arfaslakt í leiknum og ógnaði í raun aldrei marki Kosta Ríka og Keylor Navas, markvörður Real Madrid, hafði það náðugt í markinu.

Aron Jóhannsson gat ekki leikið með bandaríska liðinu vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×