Fótbolti

Sara auðveldlega áfram í Meistaradeildinni | Framlengt hjá Guðbjörgu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir. mynd/ksí
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í sænska meistaraliðinu Rosengård komust auðveldlega áfram í 16 liða úrslit Meistaradeildar kvenna í fótbolta í kvöld.

Sænsku meistararnir völtuðu yfir PK-35 frá Finnlandi, 7-0, á heimavelli. Rosengård vann fyrri leikinn, 2-0, og einvígið því samanlagt, 9-0.

Sara Björk var í byrjunarliðinu í kvöld en var tekin af velli í hálfleik enda staðan þá orðin 5-0.

Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðsmarkvörður, fékk á sig mark á 87. mínútu með liði sínu Lilleström gegn Zürich í Sviss og er leikurinn kominn í framlengingu. Fyrri leiknum lauk með 1-0 sigri norska liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×