Fótbolti

Ferli Raul að ljúka

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Raul fagnar einu af mörgum mörkum sínum með Real Madrid.
Raul fagnar einu af mörgum mörkum sínum með Real Madrid. vísir/getty
Spænski knattspyrnumaðurinn Raul Gonzalez mun leggja skóna á hilluna í næsta mánuði.

Hann er orðinn 38 ára gamall og spilar í dag með bandaríska liðinu New York Cosmos. Er tímabilinu lýkur í næsta mánuði er hann hættur.

Raul er goðsögn hjá Real Madrid og einn besti leikmaður Spánverja frá upphafi. Hann lék í 16 ár með Real og spilaði 102 landsleiki fyrir Spánverja. Hann skoraði 44 mörk í þessum 102 landsleikjum.

Á tíma sínum hjá Real varð hann spænskur meistari sex sinnum og Real vann Meistaradeildina þrisvar á hans tíma þar.

Hann varð markahæsti leikmaður í sögu Real með því að skora 323 mörk en Cristiano Ronaldo hefur hrifsað það met af honum. Hann spilaði 741 leik fyrir félagið sem er met.

Raul er líka þriðji markahæsti leikmaðurinn í sögu Meistaradeildarinnar á eftir Ronaldo og Messi en þeir tóku fram úr honum í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×