Landsliðssætið út um gluggann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. október 2015 06:00 Guðlaugur Victor Pálsson í búningi NEC Nijmegen frá Hollandi. Vísir
Guðlaugur Victor Pálsson gengst í dag undir aðgerð vegna alvarlegra meiðsla í vöðva aftan í læri en talið er að hann verði frá keppni næstu níu mánuðina. „Gríðarlegt áfall,“ segir Guðlaugur sem leikur með Esbjerg í Danmörku. „Tímabilið er bara búið,“ sagði Guðlaugur í samtali við Fréttablaðið í gær. Það er algengt að íþróttamenn, ekki síst knattspyrnumenn, togni í vöðva aftan í læri (e. hamstring), en Guðlaugur varð fyrir því óláni að vöðvinn rifnaði. „Ég hef rætt við marga lækna og sjúkraþjálfara. Þetta eru afar óalgeng meiðsli,“ segir Guðlaugur sem meiddist eftir að hafa lent í samstuði við markvörð Lyngby í bikarleik. Guðlaugur fékk sendingu inn í teig og var að teygja sig í boltann með löppinni þegar hann fékk markvörðinn á sig, meðþeim afleiðingum að það ofteygðist á vöðvanum og hann rifnaði. „Þetta er eins óheppilegt og það gerist. Markvörðurinn ætlaði að kýla boltann í burtu en lendir á mér með þessum afleiðingum,“ segir Guðlaugur Victor sem hafði skorað og verið valinn maður leiksins í sínum fyrsta leik með Esbjerg aðeins tíu dögum áður. „Í fyrstu var talað um slæma tognun og að ég yrði frá í 4-6 vikur,“ segir Guðlaugur sem meiddist fyrir tæpum fjórum vikum . „En svo kom í ljós að greining læknanna var röng. Ég fór í aðra myndatöku og þá kom rifan í ljós,“ segir Guðlaugur sem hafði háleit markmið fyrir tímabilið. „Ég var keyptur fyrir háa upphæð og því góð pressa á mér. Svo má ekki gleyma að ég fór frá Helsingborg (í Svíþjóð) til að komast aftur í mína stöðu og vinna mig nær landsliðinu. En það er núna farið út um gluggann,“ segir Guðlaugur sem á fjóra A-landsleiki að baki. Hann segir að stuðningur allra hjá Esbjerg hafi verið góður og að það komi ekkert annað til greina fyrir hann en að koma enn sterkari til baka en hann var áður. Glíma Guðlaugs við andleg veikindi hefur verið til umfjöllunar síðastliðin ár og hann segir að sú reynsla hjálpi sér nú. „Ég hef verið að vinna í sjálfum mér í dágóðan tíma og þó svo að þetta sé slæmt er þetta ekki það versta sem hefur komið fyrir mig. Ég hef unnið mig úr verri aðstæðum og get unnið mig til baka úr þessu.“
Fótbolti Tengdar fréttir Ísland í dag: Íhugaði sjálfsvíg Guðlaugur Victor Pálsson hefur gengið í gegnum erfið andleg veikindi undanfarin misseri og varð næstum gjaldþrota eftir fimm ár í atvinnumennsku. 31. mars 2014 14:00 Guðlaugur Victor skoraði í fyrsta leik Frábær byrjun Victors í fraumraun sinni með danska liðinu. 14. september 2015 19:23 Mest lesið Aldrei unnið atvinnumannamót en er efstur fyrir lokahringinn á PGA Golf Bjarni Guðmann framlengir í Garðabæ Körfubolti Bríet treður upp á stórleiknum Íslenski boltinn Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Körfubolti Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Fótbolti Þriðji deildarsigurinn í röð hjá lærisveinum Freys Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitaleikur enska bikarsins og risamót í golfi Sport „Hafa aldrei séð afa sinn í vafasömu ástandi en gera það í kvöld“ Fótbolti Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma Enski boltinn Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ „Hafa aldrei séð afa sinn í vafasömu ástandi en gera það í kvöld“ Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna „Sem hafa enn og aftur dregið skoskan fótbolta niður í svaðið“ Guðrún og stöllur náðu fram hefndum og urðu bikarmeistarar Uppgjörið: Þróttur R. - Breiðablik 3-2 | Þróttarar slógu bikarmeistarana úr leik Dregið í Mjólkurbikarnum: Stjarnan og FH mæta nýliðunum „Þess vegna líður okkur svona vel í Laugardalnum“ The Athletic: Alonso samþykkir að taka við Chelsea Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Kane endaði deildina með þrennu gegn Ísaki og félögum Eyjakonur og Austfirðingar flugu áfram í átta liða úrslit Þriðji deildarsigurinn í röð hjá lærisveinum Freys Celtic tók titilinn í lokaumferðinni Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Viktor Bjarki missir af lokaleiknum vegna meiðsla Bríet treður upp á stórleiknum Lewandowski á förum frá Barcelona „Mourinho er númer eitt“ Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma „Ég vildi að hann væri skoskur“ Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Víkingar áfram eftir framlengda spennu Bikarævintýri Reyknesinga og Garðbæinga Diljá með fimm mörk á tveimur vikum Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna FIFA og Sádar í eina sæng „Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Sjá meira
Ísland í dag: Íhugaði sjálfsvíg Guðlaugur Victor Pálsson hefur gengið í gegnum erfið andleg veikindi undanfarin misseri og varð næstum gjaldþrota eftir fimm ár í atvinnumennsku. 31. mars 2014 14:00
Guðlaugur Victor skoraði í fyrsta leik Frábær byrjun Victors í fraumraun sinni með danska liðinu. 14. september 2015 19:23