Göteborg tapaði mikilvægum stigum í toppbaráttunni | Arnór Smára á skotskónum Kristinn Páll Teitsson skrifar 4. október 2015 14:55 Hjálmar Jónsson, leikmaður IFK Göteborg. Vísir/Getty
Hjálmar Jónsson og félagar í IFK Göteborg töpuðu tveimur mikilvægum stigum á heimavelli í toppbaráttu sænsku úrvalsdeildarinnar í dag í 1-1 jafntefli gegn Halmstad sem er fallið úr deildinni. Hjálmar var í byrjunarliði Göteborg og lék allar 90. mínútur leiksins en gestirnir komust óvænt yfir með marki James Keene átta mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Göteborg náði að jafna metin tuttugu mínútum fyrir leikslok með marki frá Haitam Aleesami en lengra komust þeir ekki og lauk leiknum með 1-1 jafntefli. Jafnteflið þýðir að Göteborg er með eins stiga forskot á Norrköping sem á leik inni gegn Hacken seinna í dag. Þá kom Arnór Smárason Helsingborg yfir í 2-1 sigri á Elfsborg á heimavelli í dag en þetta var fyrsti sigur Helsingborg í sænsku deildinni í tæpa tvo mánuði. Helsingborg skaust upp í 8. sæti með sigrinum þegar þrjár umferðir eru eftir. Arnór byrjaði leikinn á miðjunni hjá Helsingborg og kom heimamönnum yfir undir lok fyrri hálfleiks en stuttu áður hafði Viktor Claesson, leikmaður Elfsborg, klúðrað vítaspyrnu. Claesson bætti upp fyrir mistök sín í seinni hálfleik er hann jafnaði metin tíu mínútum fyrir leikslok og leit allt út fyrir að liðin myndu skilja jöfn þegar Robin Simovic skoraði sigurmark Helsingborg á 92. mínútu og tryggði Helsingborg stigin þrjú.
Fótbolti Mest lesið „Ísland í hópi með Norður-Kóreu og Íran“ Sport Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Handbolti Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Íslenski boltinn Loksins þorði einhver í Kolbein sem stígur aftur inn í hringinn Sport Spence og van de Ven báðust afsökunar Fótbolti Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Handbolti „Búnt á skenkinn, Halli Egils á vegginn“ Sport Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Enski boltinn Fleiri fréttir Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Sunderland - Everton | Svörtu kettirnir geta stokkið upp í annað sætið Segir Wirtz enn vera að venjast leikjaálaginu Spence og van de Ven báðust afsökunar Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Leitin heldur áfram og Lúðvík leysir af Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan „Haaland er þetta góður“ Spánarmeistararnir halda í við toppliðið „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Viðar Ari lagði upp tvö í Íslendingaslag Daníel Leó hetjan í dramatískum sigri Ísak Bergmann og félagar nálgast Evrópusæti Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Kristian Nökkvi skoraði í Íslendingaslagnum Arna og Sædís nánast öruggar með silfrið Sjá meira