Varamaðurinn Naismith sá um Chelsea | Sjáðu mörkin Anton Ingi Leifsson skrifar 12. september 2015 13:30
Hrakfarir Chelsea halda áfram í ensku úrvalsdeildinni í knattsyrnu, en þeir lágu á útivelli gegn Everton í dag, 3-1. Steven Naismith gerði þrennu fyrir Everton, en hann byrjaði sem varamaður. Everton þurfti að gera breytingu eftir einungis níu mínútna leik, en Steven Naismith kom inná sem varamaður í stað Muhamed Besic sem fór útaf meiddur. Naismith skoraði einmitt fyrsta markið eftur sautján mínútna leik með skalla eftir laglega fyrigjöf frá Bendon Galloway. Títtnefndur Naismith var aftur á ferðinni fimm mínútum síðar, en þá skoraði hann með þrumuskoti utan teigs. Varamaðurinn að gera vörn Chelsea mikinn grikk. Veislunni í fyrri hálfleik var ekki lokið því Nemanja Matic minnkaði muninn í 2-1 á 36. mínútu með rosalegu skoti. Markið má sjá neðst í fréttinni, en staðan 2-1 fyrir Everton í hálfleik. Skotinn Naismith var ekki hættur. Hann fullkomnaði þrennuna marð þriðja marki sínu og þriðja marki Everton með skoti undir Asmir Begovic sjö mínútur fyrir leikslok. Fullkominn þar af leiðandi hjá Naismith; mark með hægri, mark með vinstri og mark með skalla. Þetta er fyrsta þrennan sem einhver leikmaður gerir gegn liði Jose Mourinho og er þetta því sögulegur leikur fyrir Skotann sem fer líklega glaður á koddann í kvöld. 3-1 urðu lokatölurnar, en Everton er með átta stig eftir fyrstu fimm leikina og eru í þriðja sætinu. Chelsea er hins vegar í bullandi vandræðum; með fjögur stig eftir fyrstu fimm leikina og meistararnir í fimmtánda sæti.2-0: 2-1: 3-1:
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira