Grænt ljós gefið á fyrsta bóluefnið við malaríu Bjarki Ármannsson skrifar 24. júlí 2015 22:39 Konur í Terekeka í Suður-Súdan, þar sem útbreiðsla malaríu er mikið vandamál. Vísir/AFP
Lyfjastofnun Evrópu hefur gefið grænt ljós á fyrsta bóluefnið sem framleitt hefur verið við malaríu. Bóluefnið gæti mögulega komið í veg fyrir milljónir malaríutilfella í þeim löndum sem kæmu til með að nota það. Efnið ber heitið RTS,S en er einnig kallað Mosquirix. Það var framleitt af breska lyfjaframleiðandanum GlaxoSmithKline og meðal annars fjármagnað af góðgerðarsamtökum bandaríska auðkýfingsins Bill Gates, sem staddur er hér á landi um þessar mundir.Að því er fréttastofa Al-Jazeera greinir frá, hefur Lyfjastofnun Evrópu (EMA) mælt með því að heimilt verði að bólusetja ungabörn með Mosquirix á þeim svæðum í Afríku þar sem útbreiðsla malaríu er hvað mest. Tillögur lyfjastofnunarinnar eru alla jafna samþykktar af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á örfáum mánuðum. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) mun einnig meta það hvar og hvenær best væri að nota bóluefnið á þessu ári. Malaría varð rúmlega hálfri milljón manns að bana árið 2013, þar af bjuggu langflestir í Mið- og Suður-Afríku. Rúmlega áttatíu prósent þeirra sem deyja úr malaríu eru börn, fimm ára og yngri. Vonir hafa lengi verið bundnar við það að hægt væri að framleiða bóluefni sem nýtist gegn sjúkdómnum, en rannsóknarteymi GlaxoSmithKlein hafa unnið að Mosquirix í um þrjátíu ár.
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Lögregla í eltingaleikjum við afbrotamenn Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Innlent Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Erlent Fleiri fréttir Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Sjá meira