Heimir: Öll liðin eiga eftir að tapa stigum Anton Ingi Leifsson skrifar 25. júlí 2015 17:55 Heimir og Lars þjálfarar Íslands. vísir/vilhelm
Heimir Hallgrímsson, annar landsliðsþjálfara Íslands, var borubrattur þegar Vísir heyrði í honum hljóðið eftir að dregið var í riðlakeppni fyrir undankeppni HM 2018 sem fram fer í Rússlandi. „Þetta er erfiður riðill. Þetta eru allt góðar þjóðir sem eru í pottinum og öll liðin i riðlinum geta unnið hvor aðra," sagði Heimir í samtali við Vísi eftir að ljóst var í hvaða riðli Ísland myndi verða. „Það er enginn leikur öruggur í riðlinum. Ég held að það sé jákvætt og þetta er ekkert ósvipað eins og fyrir þessa Evrópukeppni. Þetta leit ekkert sérstaklega vel út þegar maður horfði yfir liðin."Sjá einnig: Óspennandi riðill bíður Íslands „Við vitum auðvitað styrkinn á Króötunum og Tyrkjunum. Úkraína og Finnland eru einnig með hörkulið, en góða við það að öll liðin munu tapa stigum. Þetta er bæði jákvætt og neikvætt." Í riðlinum er ekkert smálið ef svo mætti kallast. Finnland er líklega lakasta liðið í riðlinum, en Heimir er sammála blaðamanni að ekkert lið sé lang slakast í riðlinum. „Ef við náum upp góðum leikjum ættum við að geta unnið öll liðinn. Við ættum ekki að hræðast nein lið í riðlinum og það eru engin stig sem maður lítur á sem örugg."Sjá einnig: Twitter logar eftir dráttinn Ísland tapaði fyrir Króatíu í umspili um laust sæti á heimsmeistaramótinu 2014, en tapaði þeim leik eftirminnilega. Heimir segir að það sé ljóst að menn verði vel gíraðir fyrir þann leik. „Það er klárt. Ég held að það sé öruggt að við verðum með blóð á tönnunum þegar við mætum Króötunum," sagði Heimir. Ísland er í fimm liða riðil, en ekki sex liða eins og flestir riðlarnir eru. Heimir segir það ekki skipta öllu máli. „Við fáum þá vonandi góða vináttuleiki. Það er ekki lykilatriði hvort við erum í fimm eða sex liða riðli. Það þýðir auðvitað að við fengum ekki stærstu þjóðirnar með okkur í riðil," sagði Heimir í samtali við heimasíðu KSí. „Allir þessir leikir verða erfiðir. Ætli svarið sé ekki að þetta hefði alveg getað verið verra."
Fótbolti Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Fleiri fréttir Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjá meira