Dökk fortíð Housers ratar á yfirborðið eftir skotárásina í kvikmyndahúsi Birgir Olgeirsson skrifar 25. júlí 2015 23:41 Frá bænastund í Lafayette eftir skotárásina. Vísir/EPA
Lögreglan í Bandaríkjunum reynir nú að komast að því hvers vegna John Russell Houser ákvað að hefja skothríð í The Grand 16-kvikmyndahúsinu í borginni Lafayette á föstudag. Skotárásin átti sér þegar kvikmyndin Trainwreck var sýnd en vitni segja hinn 59 ára gamla Houser ekki hafa sagt orð þegar hann hóf skothríðina. Tveir létu lífið í árásinni og níu særðust áður en Houser fyrirfór sér. Fjölmiðlar vestanhafs segja Houser hafa verið truflaðan einstakling sem var með Suðurríkjafána fyrir utan heimili sitt og hakakross fyrir utan bar sem hann átti. Hann er einnig sagður hafa komið fyrir dreifimiðum í pósthólf nágranna sinna þar sem hann hvatti þá til að hamstra birgðir því von væri á alþjóðlegu efnahagshruni.John Russel HouserFréttablaðið/AFPFjölskylda hans segir hann hafa glímt við geðræn vandamál og talaði hún fyrir því í dómsal árið 2008 að Houser þyrfti að komast undir læknishendur. Árið 1989 hafði dómari skipað honum í geðmat eftir að hann hafði lagt á ráðin um að myrða lögfræðing. Hafði Houser ráðið brennuvarg til að kveikja í skrifstofu lögfræðingsins.Houser hafði misst allt fyrir skotárásina. Fjölskylduna, fyrirtækið og heimilið. Þegar átti að bera hann út af heimili sínu ákvað hann að eyðileggja eignina með því að hella steinsteypu í pípulagnirnar og lími í raflagnirnar. Það eina sem var óskemmt á heimili hans var brúðarkjóll fyrrverandi eiginkonu hans. Yfirvöld hafa verið gagnrýnd fyrir vera ekki með Houser undir eftirliti miðað við fortíð hans og þá hafa margir spurt þeirrar spurningar hvers vegna hann fékk að kaupa hálfsjálfvirka skammbyssu þrátt fyrir að honum hafi verið hafnað um byssuleyfi.Hosuer er sagður hafa lofað Adolf Hitler opinberlega og var undir eftirliti eftir að hafa óskað eftir að hitta fyrrverandi leiðtoga KuKluxKlan, David Duke.
Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Fleiri fréttir Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa Sjá meira