„Forseti fólksins“ fallinn frá Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. júlí 2015 18:24 Abdul Kalam með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands árið 2005. Vísir/valgarður
A.P.J. Abdul Kalam, fyrrum forseti Indlands, lést í dag 83. ára að aldri. Kalam hneig niður er hann flutti fyrirlestur við IIM í Shillong fyrr í dag. Honum var flýtt á sjúkrahús en var úrskurðaður látinn rúmum tveimur tímum síðar. Endurlífgunartilraunir lækna báru ekki árangur. Kalam var ellefti forseti Indlands og gegndi embætti frá árinu 2002 til 2007 og naut gríðarlegrar hylli almennings sem kallaði Kalam „forseta fólksins.” Áður en hann gegndi embætti forseta Indlands vann Kalam við geimferðaáætlun Indverja ásamt því að koma að þróun sprengjuflauga hersins og fékk því viðurnefnið „eldflaugamaðurinn.“ Búist er við því að báðar deildir indverska þingsins heiðri minningu Kalams og að sjö daga langri þjóðarsorg verði lýst yfir í landinu vegna fráfalls fyrrum forsetans. Abdul Kalam kom hingað til lands í opinbera heimsókn árið 2005 þar sem hann ræddi við íslenska ráðamenn um samvinnu Íslands og Indlands á ýmsum sviðum, til að mynda á sviði jarðskjálftavarna og lyfjaþróunar. Þá heimsótti hann einnig höfuðstöðvar Actavis í Hafnarfirði og lagði þar hornstein að nýrri byggingu fyrirtækisins. Kalam lagði einnig mikla áherslu á að ræða við námsmenn á ferðalögum sínum og hitti hann meðal annars stúdenta í Háskóla Íslands þegar hann kom hingað til lands. Sagði hann þeim í stuttu máli frá hugmyndum sínum um hvernig þróun indversks samfélags geti orðið í framtíðinni til þess að það markmið náist að enginn verði undir fátæktarmörkum á Indlandi árið 2020.
Mest lesið Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Innlent Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innlent Mannskæð skotárás í skóla í Bandaríkjunum Erlent Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Innlent Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Erlent Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Innlent Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Erlent Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Innlent Með mikla áverka og mjög kaldur þegar hann fannst Innlent Raðsundlaugarkúkari gengur laus í Oulu Erlent Fleiri fréttir Mannskæð skotárás í skóla í Bandaríkjunum Með rétt til að „gera hvað sem ég vil“ „Þetta í raun staðfestir það sem að flestir bjuggust við“ Tilraunaskotið heppnaðist loksins Biður grænlenskar konur afsökunar vegna „lykkjumálsins“ Raðsundlaugarkúkari gengur laus í Oulu Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Frakkar skila höfuðkúpu konungsins Toera Fundu steinaldarbyggð í Árósaflóa sem fór undir sjó eftir ísöld Lögfesta bann gegn símanotkun í skólum Kallar bandarískan erindreka á teppið vegna Grænlandsmála Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ 50 prósenta tollar á indverskar vörur taka gildi í Bandaríkjunum Málverk stolið af nasistum fannst í argentínskri fasteignaauglýsingu Gríðarstór sandstormur olli usla í Arizona Ungstirni ryður sér til rúms Árásir á olíuvinnslu í Rússlandi bíta Flúði þungvopnaður eftir að hafa myrt tvo lögregluþjóna Stefna búi Epsteins og vilja afmælisbókina Ástralir vísa sendiherra Íran úr landi og loka sendiráðinu í Tehran Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Örlög Bayrou ráðast 8. september Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Sjá meira