Náði að kasta syni sínum áður en hún beið bana Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. júlí 2015 21:17 Í myndbandinu sést hvernig gólfflöturinn gefur sig þegar konan stígur á hann. vísir/skjáskot
Kínversk kona flæktist í rúllustiga með þeim afleiðingum að hún beið bana. Myndband af atvikinu, sem fangað var með öryggismyndavél, rataði inn á kínverska miðla í gær en þar sést hvernig efsti hluti stigans gefur sig er hún stígur á hann. Konan hélt á barni sínu en náði að koma því í hendurnar á vegfaranda sem stóð þar skammt undan áður en hún var dregin niður í gangvirki stigans. Myndbandið má sjá hér að neðan en rétt er að vara viðkvæmar sálir við því sem þar má sjá. Kínverski ríkismiðillinn Xinhua greindi frá því að hin þrítuga Xiang Liujuan hafi látið lífið í versluninni Jingzhou Shashi Anliang í gær. Sonur hennar, sem bjargaðist, er á þriðja aldursári. Það tók björgunarmenn næstum fjórar klukkustundir að endurheimta lík hennar úr stiganum ef marka má þarlenda miðla. Að sögn Los Angeles Times var vitað að hluti í gangvirkið hafi vantað í aðdraganda slyssins. Þá er talið að gleymst hafi að festa gólfflötinn eftir að unnið hafði verið að viðgerðum á stiganum skömmu áður en því hefur ekki verið slegið föstu. Enn liggur á huldu hvort starfsmennirnir tveir sem sjá má í myndbandinu hafi vitað að eitthvað væri að stiganum en þeir standa til hliðar við hann, í öruggri fjarlægð frá gólffletinum sem að lokum gaf sig. Kínverskir netverjar eru æfir yfir atvikinu og hafa farið fram á svör frá verslunarmiðstöðinni en hrun gólfsins er enn í rannsókn.
Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Sjá meira