Forseti Sampdoria staðfestir áhuga á Balotelli Kristinn Páll Teitsson skrifar 28. júlí 2015 12:00 Balotelli er virkur á samskiptamiðlunum. Vísir/Getty
Forseti Sampdoria, Massimo Ferrero, staðfesti áhuga félagsins á Mario Balotelli, framherja Liverpool en til þess að félagsskiptin gangi eftir verða bæði Liverpool sem og Balotelli að vera liðleg. Balotelli sem er 24 árs ítalskur landsliðsmaður gekk til liðs við Liverpool fyrir síðasta tímabil frá AC Milan. Greiddi Liverpool 16 milljónir punda fyrir hann og er óhætt að segja að hann hafi ekki staðið undir þeim verðmiða en hann skoraði aðeins fjögur mörk í 28 leikjum, þar af aðeins eitt í ensku úrvalsdeildinni. Eftir að Liverpool gekk frá kaupunum á Danny Ings, Christian Benteke og Robert Firminho er talið að Balotelli sé á förum frá félaginu. Ferrero segir að Sampdoria geti aðeins borgað hluta af því sem Liverpool greiddi fyrir hann á sínum tíma en samkvæmt honum vill Liverpool fá 10 milljónir evra fyrir þjónustu ítalska framherjans. „Hann var víst í Genoa í gærkvöldi en hann kostar 10 milljónir evra og á meðan get ég ekkert gert. Með afslætti myndi ég taka honum opnum örmum en Liverpool og hann þurfa að skilja eitthvað sem þekkist á Ítalíu. Þú getur komist hjá með eitthvað lítið frekar en að deyja því þú færð ekkert,“ sagði Ferrero sem virðist gefa til kynna að Liverpool ætti einfaldlega að sætta sig við tapið í stað þess að fresta því og fá ekkert síðar meir.
Enski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Sjá meira