San Francisco-borg snýst til varnar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. júlí 2015 11:30 List í almannarými hefur alltaf verið í hávegum höfð í San Francisco. Vísir/Getty
Framkvæmdadeild San Francisco-borgar í Bandaríkjunum hefur hafið prófanir á nýrri málningu á ákveðnum svæðum í kringum bari og veitingastaði þar sem finna má hátt hlutfall heimilislausra og annarra gesta. Málningin er sérstaklega hönnuð til þess að endurkasta frá sér vökva og er ætluð til þess að koma í veg fyrir að menn kasti af sér þvagi á húsveggi og önnur óæskileg svæði. Í stað þess að renna meðfram veggnum og niður á jörðina kastast þvag eða annar vökvi til baka og ættu gerendur því að hugsa sig um tvisvar áður en að kallið kemur skyndilega séu þeir staddir í San Francisco, vilji þeir ekki eiga það á hættu að sitja upp með hlandblautar buxur. Málningin nefnist Ultra-Ever Dry og samkvæmt framleiðenda hennar virkar hún þannig að það myndast örlítil loftfyrirstaða sem á að kasta frá sér nánast hvaða vökva sem er. Málningin var þróuð í Þýskalandi eftir að yfirvöld í St.Pauli leituðu lausna til að stemma stigu við þennan fylgifisk hinna fjölmörgu ferðamanna sem heimsækja St.Pauli á hverju ári. Að sögn forsvarsmanna framkvæmdadeildar San Francisco-borgar er málningin hagkvæmari lausn en að senda út starfsmenn til að hreinsa þau svæði sem verða fyrir barðinu á tíðum þvaglátum. Jafnframt stendur til að fjölga almenningsklósettum í San Francisco.
Mest lesið Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Metfjöldi gesta tvo daga í röð Innlent Íranir mótmæla á ný Erlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent Fleiri fréttir Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Sjá meira