Rosicky: Töpum ef við spilum eins og gegn Lettlandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. júní 2015 08:00 Rosicky á Laugardalsvellinum í gær. Vísir/Ernir
Tomas Rosicky, fyrirliði tékkneska landsliðsins, sat fyrir svörum blaðamanna fyrir æfingu liðsins á Laugardalsvelli í gær. Hann sagði þá að hann bæri mikla virðingu fyrir íslenska liðinu. „Íslenska liðið er taktískt og vel skipulagt. Leikmenn eru með góða tækni og Íslendingar spiluðu vel gegn okkur síðast. Ég á von á svipuðu frá þeim í nú,“ sagði Rosicky. Ísland vann fyrstu þrjá leiki sína í riðlinum án þess að fá á sig mark en tapaði svo fyrir Tékklandi í Plzen í haust. Strákarnir komust svo aftur á beinu brautina með 3-0 sigri á Kasökum ytra. „Ísland getur komið hvaða lið sem er á óvart. Við þurfum að vera varkárir,“ sagði Rosicky. Tékkar urðu fyrir áfalli um helgina er sóknarmaðurinn David Lafata, aðalframherji liðsins, varð fyrir meiðslum á æfingu landsliðsins. Hann verður því ekki með liðinu í kvöld. „Það er slæmt að missa hann en það er samt ekki svo að fjarvera eins leikmanns breytir ekki liðinu og leikstílnum,“ sagði Rosicky spurður um málið. „Við viljum spila sókndjarfan fótbolta sem gaman er að horfa á.“ Tékkland gerði óvænt jafntefli gegn Lettlandi á heimavelli í mars síðastliðnum og tapaði þar með fyrstu stigum sínum í riðlinum. „Við verðum að spila betur en í þeim leik. Ef við spilum jafn illa og við gerðum gegn Lettlandi munum við tapa fyrir Íslandi.“
Fótbolti Mest lesið Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Fótbolti Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Sjá meira