Grínuðust með árásina á Pearl Harbor Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. júlí 2015 21:33 Margir fögnuðu sigri Bandaríkjanna á Japan í nótt Vísir/EPA
Sigur Bandaríkjamanna á Japönum á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gærkvöldi fékk margan netverjann til að leiða hugann að árásinni á Pearl Harbor árið 1941, ef marka má samfélagsmiðlanna. Þannig varð Pearl Harbor að einu vinsælasta tístefninu á Twitter í gærkvöldi og þúsundir tísta um hina sögufrægu árás hrönnuðust inn eftir að ljóst var í hvað stefndi í leik gærkvöldsins. „Hey Japan, þetta var fyrir Pearl Harbor,“ sagði Cloyd Rivers í tísti sem naut töluverðra vinsælda en því hefur verið deilt áfram rúmlega 11 þúsund sinnum.Twitter-aðgangurinn er þekktur fyrir að gantast með bandaríska þjóðrembu en ljóst er að mörgum þótti vísun í árásina sem varð um 2500 manns að bana við strendur Hawaii í seinna stríði nógu viðeigandi til að deila henni áfram. „Þeir rústuðu Pearl Harbor, við rústuðum drauma þeirra,“ sagði tístarinn Sean Garcia að sama tilefni.Aðrir vísuðu í kjarnorkusprengjur Bandaríkjanna á Hiroshima og Nagaski í kjölfar sigursins og var það oftar en ekki á þeim nótum að „búið væri að hefna fyrir árásina á Pearl Harbor.“ Þó voru nokkrir tístarar sem fordæmu þá sem göntuðust með árásirnar, hvort sem var á Hiroshima og Nagaski eða Pearl Harbor. Í árásinni á Pearl Harbor náðu Japanir að eyðileggja 188 flugvélar bandaríska hersins og skemma 159, einnig sökktu þeir eða ollu stórtjóni á 18 herskipum. Afleiðingar árásarinnar voru þær að Bandaríkjamenn voru nú orðnir þátttakendur íseinni heimsstyrjöldinni og hefndu sín á Japönum í orrustunni við Midway og með því að sprengja tværkjarnorkusprengur yfir japönsku borgunum Hiroshima, þar sem rúmur þriðjungur íbúa lét lífið, og Nagasaki.
Mest lesið „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi Innlent Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Innlent Reiðin magnast í Venesúela Erlent Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Innlent Fleiri fréttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Sjá meira