Ók á 100 kílómetra hraða inn í þvögu af fólki Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. júní 2015 14:59 Bíllinn sem maðurinn ók. vísir/epa
Í það minnsta þrír eru látnir og 34 særðir eftir að maður ók bíl sínum inn í þvögu af fólki í borginni Graz í Austurríki í dag. Fólkið var samankomið á torgi í borginni til að fylgjast með viðburði í tengslum við Formúlu 1-keppninni sem fram fer um helgina í nágrenni borgarinnar. Lögreglan hefur handtekið ökumanninn, sem er 26 ára gamall. Ekkert bendir til að atvikið tengist hryðjuverkastarfsemi af einhverjum toga en lögreglan veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu. Graz er höfuðborg fylkisins Styria í Austurríki og sagði fylkisstjórinn, Hermann Schuetzenhoefe, við fjölmiðla að það væri engin skýring eða afsökun á atviki sem þessu. Vitni að slysinu sagði að ökumaðurinn hafi verið á að minnsta kosti 100 kílómetra hraða. „Þetta var hræðilegt og allir voru í miklu uppnámi.“
Mest lesið Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Fleiri fréttir Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Sjá meira