Fótbolti

Viðar tryggði Jiangsu sigur með sínu sjötta deildarmarki

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar Örn er kominn með sex mörk í kínversku deildinni.
Viðar Örn er kominn með sex mörk í kínversku deildinni. vísir/getty
Viðar Örn Kjartansson var hetja Jiangsu Guoxin-Sainty þegar liðið vann 3-2 sigur á Shanghai Shenhua í kínversku ofurdeildinni í fótbolta í dag.

Viðar kom inn á sem varamaður á 64. mínútu, í stöðunni 2-2, og níu mínútum síðar skoraði hann sigurmark Jiangsu.

Þetta var sjötta mark Viðars í deildinni en hann er markahæsti leikmaður Jiangsu.

Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn í vörn Jiangsu en liðið komst upp í 6. sæti deildarinnar með sigrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×