Þrjú rauð spjöld í sigri Chile | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júní 2015 08:06 Mauricio Isla og Alexis Sánchez fagna marki þess fyrrnefnda. vísir/getty
Chile varð í nótt fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Suður-Ameríkukeppninnar með 1-0 sigri á Úrúgvæ í Santíagó.Markið og helstu atvik úr leiknum má sjá í myndbandinu hér að neðan. Heimamenn í Chile, sem hafa aldrei unnið keppnina, voru miklu meira með boltann í leiknum (80% gegn 20%) en vörn Úrúgvæ, sem vann keppnina fyrir fjórum árum, var ógnarsterk. Staðan var markalaus í hálfleik en á 63. mínútu dró til tíðinda þegar Edinson Cavani, framherji Úrúgvæ, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir afar litlar sakir.Edinson Cavani fékk að líta rauða spjaldið.vísir/gettyPressa Chile jókst einungis við þetta og heimamenn brutu loks ísinn á 81. mínútu þegar hægri bakvörðurinn Mauricio Isla skoraði með góðu skoti eftir flotta sókn og sendingu frá Jorge Valdívia, besta manni vallarins. Ekki var allt búið enn því tveimur mínútum fyrir leikslok var Jorge Fucile einnig rekinn út af við litla hrifningu úrúgvæska liðsins. Leikmenn Úrúgvæ mótmæltu brottrekstrinum harkalega og nokkur töf varð á leiknum vegna þess en þjálfara Úrúgvæ, hinum 68 ára gamla Óscar Tabárez, var m.a. vikið upp af velli fyrir mótmæli. Fleiri urðu mörkin ekki og Chile fagnaði sigri og sæti í undanúrslitunum. Þar mæta heimamenn sigurvegaranum úr leik Bólivíu og Perú en liðin mætast í Temuco í nótt.
Fótbolti Mest lesið Glódís: „Gríðarlega erfitt að sitja með þá tilfinningu eftir mót“ Sport Skýrsla Arons: Stórum spurningum þarf að svara Fótbolti Dagný: Veit ekkert hvað ég er að fara að gera Fótbolti „Það var köld tuska í andlitið“ Fótbolti „Þegar við spilum svona þá uppskerum við yfirleitt“ Fótbolti Sveindís: Maður vinnur ekki leiki nema að skora mörk Fótbolti Vill halda áfram: „Tel mig hafa getuna í það“ Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Einkunnir Íslands: Sveindís langbest Fótbolti Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Fleiri fréttir Skýrsla Arons: Stórum spurningum þarf að svara „Þegar við spilum svona þá uppskerum við yfirleitt“ Sveindís: Maður vinnur ekki leiki nema að skora mörk „Það var köld tuska í andlitið“ Dagný: Veit ekkert hvað ég er að fara að gera Uppgjörið: Valur - Flora 3-0 | Valsmenn í góðri stöðu Vill halda áfram: „Tel mig hafa getuna í það“ Einkunnir Íslands: Sveindís langbest Dramatískt jafntefli sendir heimakonur í átta liða úrslit Ítalskur deildarleikur í Ástralíu í febrúar? „Við erum að gera eitthvað rétt“ Þrjár breytingar: Katla fær stórt tækifæri í lokaleik Íslands á EM Uppgjörið: Malisheva - Víkingur 0-1 | Fagleg frammistaða hjá Víkingum Uppgjör: Ísland - Noregur 3-4 | Daufur endir á slöppu ævintýri Myndaveisla: Íslensk yfirtaka í Thun og vonast eftir fyrsta sigrinum Á góðum stað fyrir mikil átök Fjórir eru tveimur leikjum frá því að vinna sjö titla á einu ári Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ EM í dag: Hungur í sigur, þreytandi vörður og næstum stærsta skúbb mótsins „Miklu skemmtilegra að vera í þessari baráttu“ Arsenal eflir miðjuna enn frekar Sex hafa ekkert spilað á EM Sjáðu strákana á N1 mótinu sýna snilli sína Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ajax riftir samningi Jordans Henderson Síðasti séns á að vinna milljónir Missum Hondúras upp fyrir okkur en höldum sama sæti á FIFA listanum Missir af leik á EM vegna höfuðmeiðsla Messi í stuði í nótt og nældi sér í enn eitt metið Sjá meira