Meindýraeyðir Íslands saknar geitunganna Jakob Bjarnar skrifar 26. júní 2015 15:08 Steinar Smári með vopn sín og verjur, klár í slaginn við skordýrin. visir/Andri Marinó
Geitungarnir eru nánast horfnir og það hefur vissulega áhrif á afkomu þeirra sem fást við meindýr að atvinnu. Steinar Smári Guðbergsson meindýraeyðir hefur verið í þeim bransa frá 2005. „Já, það eru allir fegnir því að þeir séu farnir, en ekki ég. Hugsa að allir meindýraeyðar séu sammála um það þeir mættu vera fleiri,“ segir Steinar Smári, einyrki með fyrirtæki sem fer um undir yfirskriftinni Meindýraeyðir Íslands.Allt mánuði seinna á ferðinni„Þetta hefur áhrif á mína afkomu, eðlilega. En, neinei, þetta er ekkert að setja mig á hausinn. Annað er líka sem er með köngulóaeitrunina. Það er miklu minna núna en í fyrra. Það er allt mánuði seinna á ferð en miðað við í fyrra. Gróður og skordýr öll,“ segir Steinar Smári. Það er miklu minna að gera hjá honum en á sama tíma fyrir ári. En, hann hefur engu að síður í ýmis horn að líta. Í orðsins fyllstu merkingu. „En allt árið um kring eru silfurskottur, hamgærur, feldgærur og kakkalakkar eru alltaf af og til á ferli. Reyndar ekki mikið. Og svo blessuð veggjalúsin. Kemur alltaf reglulega upp.“Meindýraeyðir Íslands eitrar fyrir óæskilega gesti.visir/Andri MarinóFarið fækkandi undanfarin fjögur árMeindýraeyðir Íslands segir flesta fegna því að svo virðist sem geitungarnir séu horfnir. „Nema ég. Já, allir meindýraeyðar sammála um það að þeir mættu vera fleiri. En, þeir eru ekkert farnir fyrir fullt og allt. Trjágeitungarnir eru ekkert að fara, en ég gæti trúað að hinn geitungurinn sem hér er að finna, holugeitungurinn eigi verulega undir högg að sækja.“ Á Íslandi var til skamms tíma að finna fjórar tegundir geitunga. Hinar tvær tegundirnar hefur Steinar Smári hins vegar ekki séð árum saman sem eru roðageitungur og húsageitungur. Það sem varð til að fækka þeim verulega þetta árið, að sögn Steinars Smára, var næturfrost sem gerði fjórar nætur í röð í byrjun maí. Svo virðist sem það hafi nánast gengið frá geitungunum: „Þeir eru mun færri en í fyrra. Í fyrra voru þeir mun færri en árið áður. Og í hitteðfyrra voru þeir færri en þar áður. Þeim hefur farið mjög fækkandi undanfarin þrjú til fjögur ár.“Saknar geitunganna þrátt fyrir gráðaofnæmiSteinar Smári hefur tekið fáein geitungabú í sumar en í samanburði við í fyrra eru þau svo fá að það tekur því varla að nefna það. Og þó Meindýraeyðir Íslands sé ekki sú manngerðin sem ber sig illa, það fer ekkert á milli mála, sér hann ekki fram á bjarta tíma í þessum bransa. Vísindamenn halda því fram að nú stefni í litla ísöld.Steinar Smári er með bráðaofnæmi fyrir stungum geitunga og er alltaf með tilbúna adrenalínsprautu í bílnum, verði hann fyrir slíku -- en hann hefur ekki enn verið stunginn.visir/Andri Marinó„Samskonar veðrátta veðráttu þá og var 1645 til 1715, og er almennt kallað litla ísöld. Sólblettir sem eru minna virkir nú en áður. Þannig að við erum að sjá fram á kaldari tíð, samkvæmt bresku veðurstofunni.“ Skordýrum fækkar en Steinar Smári þarf eftir sem áður að eitra innandyra. „Já, það má segja að ég sakni geitunganna. Þó ég sé með bráðaofnæmi fyrir stungum hans. Ég er með með adrenalínsprautu í bílum. Epipen. En hef ekki verið stunginn ennþá.“
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira