Staðfesting á dómi yfir Raif Badawi sagður svartur dagur fyrir tjáningarfrelsið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. júní 2015 22:49 „Það er ekki glæpur að blogga og Raif Badawi er refsað fyrir það eitt að nýta sér tjáningarfrelsi sitt,“ sagði Philip Luther, framkvæmdastjóri skrifstofu Amnesty International fyrir Mið-Austurlönd og Norður-Afríku.
Ákvörðun hæstaréttar í Sádi-Arabíu um að staðfesta dóminn er bloggarinn Raif Badawi hlaut upp á 10 ár í fangelsi og 1000 svipuhögg er svartur dagur fyrir tjáningarfrelsið í landinu, að sögn Amnesty International. „Það er andstyggilegt að þessi grimmilegi og óréttláti dómur hafi verið staðfestur. Það er ekki glæpur að blogga og Raif Badawi er refsað fyrir það eitt að nýta sér tjáningarfrelsi sitt,“ sagði Philip Luther, framkvæmdastjóri skrifstofu Amnesty International fyrir Mið-Austurlönd og Norður-Afríku. Með því að láta hjá líða að snúa við dómi undirréttar yfir Raif Badawi, hafi sádiarabísk yfirvöld sýnt réttlætinu lítilsvirðingu og þeim þúsundum radda sem hafa kallað eftir tafarlausri og skilyrðislausri lausn hans. Nú, þegar dómur hans er endanlegur og óafturkræfur, má jafnvel búast við að opinber hýðing hans fari fram næsta föstudag, 12. júní. Ákvörðun þessi kastar enn frekari rýrð á nú þegar bága stöðu mannréttinda í Sádi-Arabíu segir í tilkynningu Amnesty. „Þann 14. maí 2014 hlaut Raif Badawi tíu ára fangelsisdóm ásamt því að sæta 1000 svipuhöggum og greiðslu sektar upp á 1 milljón riöl (rúmlega 35 milljónir króna) eftir að hafa sett upp vefsíðu ætlaða til samfélagslegrar og pólitískrar umræðu í Sádi-Arabíu. Hann er samviskufangi og hafa tugþúsundir félaga Amnesty International gripið til aðgerða í herferð samtakanna þar sem kallað er eftir lausn hans,“ segir í tilkynningunni. Þann 9. janúar 2015 sætti Raif Badawi 50 svipuhöggum eftir föstudagsbænir á almenningstorgi í Jeddah og leiddi það til alþjóðlegra mótmæla. Frekari hýðingum var frestað í tvær vikur samkvæmt læknisráði. Hann hefur ekki sætt hýðingum síðan þá, en stjórnvöld hafa ekki gefið upp ástæður þess. Eftir niðurstöður hæstaréttar er hann í mikilli hættu á að sæta þeim 950 svipuhöggum sem eftir eru af dómnum kemur fram í tilkynningu Amnesty International.
Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni Erlent Fleiri fréttir Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Sjá meira