Danska stjórnin rétt heldur velli Heimir Már Pétursson skrifar 18. júní 2015 17:41 Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra, á kjörstað í dag. vísir/epa
Bláa blokkin fær einum þingmanni fleiri en rauða blokkin í dönsku þingkosningunum sem fram fara í dag samkvæmt útgönguspá Metro fríblaðsins. Samkvæmt útgönguspánni fengi blá blokkinn undir forystu Lars Lökke Rasmunssen formanns Venstre 88 þingmenn en vinstri blokkinn undir forystu Helle Thorning Schmidt forsætisráðherra 87 þingmenn. Útgönguspáin nær ekki til greiddra atkvæða í Færeyjum og á Grænlandi en þau eiga fjóra þingmenn á danska þinginu. En almennt njóta vinstri flokkarnir meira fylgis þar en hægri flokkarnir. Hrannar B. Arnarson framkvæmdastjóri jafnaðarmanna í Norðurlandaráði fylgist grannt með kosningunum ytra. Hann segir úrtak Metro ekki stórt. Hins vegar sé gert ráð fyrir að rauða blokkinn njóti meira fylgis en bláa blokkinn í Færeyjum og á Grænlandi og því gæti forsætisráðherrann haldið velli með atkvæðum Færeyinga og Grænlendinga. „Það er hins vegar athyglivert hvað innflytjendamál hafa verið áberandi í kosningabaráttunni og því gæti afstaða almennings til þeirra ráðið úrslitum á lokametrunum,“ segir Hrannar. Metro fór ekki að beiðni um að birta ekki útgönguspá fyrr en kjörstöðum hefur verið lokað en það gerðu hins vegar stóru miðlarnir. Þeir birta sínar spar klukkan sex, um leið og kjörstöðum verður lokað. Uppfært klukkan 18:10: Samkvæmt útgönguspá danska ríkisútvarpsins, DR, fær bláa blokkin þremur þingmönnum fleiri en rauða blokkin í kosningunum, 89 þingmenn á móti 86. Það sama á þó við um þessa útgönguspá og þá frá Metro að atkvæði frá Grænlandi og Færeyjum eru ekki með.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Fleiri fréttir Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Sjá meira