Íslendingur skipaður aðstoðarsamgönguráðherra Noregs Jóhann Óli Eiðsson skrifar 5. júní 2015 14:11 Reynir sést hér til vinstri ásamt Ketil Solvik-Olsen. mynd/olav heggø
Reynir Jóhannesson var í dag skipaður aðstoðarsamgönguráðherra Noregs en hann hafði starfað sem pólitískur ráðgjafi í sama ráðuneyti frá árinu 2013. Reynir verður Ketil Solvik-Olsen, samgönguráðherra og varaformanni Framfaraflokksins, innan handar og mun að miklu leiti sjá um póst- og fjarskiptamál, umhverfismál og hafnir. „Ég hef þekkt ráðherrann síðan ég var að vinna hjá þingflokknum. Þegar hann varð ráðherra var ég gerður að pólitískum ráðgjafa og nú er ég oðinn aðstoðarráðherra. Því fylgja í raun allar flestar skyldur ráðherra nema ég get ekki mætt á ríkisstjórnarfundi eða fundi með kónginum,“ segir Reynir sem er að auki tengiliður ráðherra við fjölmiðla. „Það veltur svolítið á því hver spyr hvort ég segist vera Norðmaður eða Íslendingur,“ segir Reynir. Á pappírunum er hann hins vegar eingöngu Norðmaður. „Það var svolítið skrítin stund þegar ég skilaði inn íslenska vegabréfinu en ég vildi geta kosið í landinu þar sem ég bý.“ Reynir er frá Siglufirði en þegar hann var átta ára fluttist fjölskyldan búferlum til Noregs. Þegar kom að því að fara í háskóla fluttist hann aftur heim til Íslands og nam stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Þaðan útskrifaðist hann 2009.Fékk vinnu hjá þingflokknum fyrir hálfgerða tilviljun „Það var rosalega gott að koma heim og tengjast ættingjum sem maður hafði ekki hitt lengi. Það var líka gott að bæta íslenskuna örlítið og ná henni upp á tíu.“ Reynir, sem er 29 ára í dag, er giftur Ástu Hrund Guðmundsdóttur og saman eiga þau son. Annað barn er á leiðinni. „Við tölum alltaf íslensku inn á heimilinu.“ Þegar náminu lauk sneri hann aftur til Noregs. „Þetta var á þeim tíma að allt var frekar dapurt á Íslandi og litla atvinnu að hafa. Fyrir hálfgerða tilviljun fékk ég vinnu hjá þingflokki Fremskrittpartiet og hef unnið mig þaðan upp,“ segir Reynir. Hann hafi þó verið tengdur flokknum fyrir en þegar hann var átján ára sat hann í bæjarstjórn í Sandefjord fyrir flokkinn. Nýi aðstoðarráðherrann skellir upp úr þegar hann er spurður hvort hann skelfist ekki að vera yfir hafnarmálum Noregs en landið er þekkt fyrir að vera ansi vogskorið og firðirnir fjölmargir. „Ég efast um að ég muni ná að heimsækja hvern og einn þeirra en þetta er mikilvægt mál fyrir Noreg. Olíugeirinn reiðir sig mjög á hafnirnar en ég þekki vel til málaflokksins og hef unnið við þetta í dágóðan tíma núna.“ „Ég er ekki mikill fótboltaáhugamaður en núna skil ég aðeins hvernig tilfinning það er að komast upp um deild og í úrvalsdeildina. Það er held ég besta líkingin sem mér dettur í hug varðandi líðan mína að stýra ráðuneytinu,“ segir Reynir. Samtalið varð ekki lengra þar sem ráðherrann sjálfur þurfti að brúka krafta Íslendingsins.
Mest lesið Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastala tók á loft Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Fleiri fréttir Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Sjá meira