Vestsjælland fallið úr dönsku deildinni 31. maí 2015 16:44 Eggert Gunnþór Jónsson og félagar urðu að sætta sig við fall. vísir/getty
Næstsíðusta umferðin í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu var leikin í dag og komu nokkrir Íslendingar við sögu. Mesta spennan var í leik Esbjerg og Vestsjælland en þessi lið börðust um sæti í deildinni. Íslendingaliðið Vestsjælland þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að eiga von um að spila í efstu deild á næstu leiktíð en með sigri myndi Esbjerg bjarga sér frá falli. Svo fór að Esbjerg marði sigur með marki í uppbótartíma en lokatölur urðu 2-1 og Vestsjælland því fallið. Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn í liði Vestsjælland en Frederik Schram sat á bekknum. Randers gerði 1-1 jafntefli við Bröndby þar sem Theódór Elmar Bjarnason lék allan leikinn í liði Randers. Ögmundur Kristinsson sat á bekknum en hann mun að öllum líkindum yfirgefa Randers í sumar. Hólmbert Aron Friðjónsson var ekki í leikmannahópi Bröndby. Ari Freyr Skúlason og Hallgrímur Jónasson voru báðir í byrjunarliði OB sem gerði jafntefli við Hobro á útivelli. Ari lék allan leikinn en Hallgrímur fór af velli á 59. mínútu. Þrír Íslendingar komu við sögu í leik Sönderjyske og FC Köbenhavn sem endaði með 2-1 sigri Kaupmannahafnarliðsins. Rúrik Gíslason og Björn Bergmann Sigurðarson léku allan leikinn með FC Köbenhavn en Baldur Sigurðsson fór af velli á 52. mínútu í liði Sönderjyske. Nordsjælland, liðið sem Ólafur Kristjánsson þjálfar, vann 1-0 sigur á meisturunum í Midtjylland. Adam Örn Arnarson lék allan leikinn fyrir Nordsjælland, Guðmundur Þórarinsson var í byrjunarliðinu en fór af velli og þeir Guðjón Baldvinsson og Rúnar Alex Rúnarsson komu ekkert við sögu. Þá vann AaB 2-1 sigur á Silkeborg á útivelli.
Fótbolti Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Óvissa í Indlandi lætur City selja Fótbolti Fleiri fréttir Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka Sjá meira