Eigandinn ákærður fyrir morð Stefán Ó. Jónsson skrifar 31. maí 2015 23:20 Eigandi verksmiðjunnar, Mohammed Sohel Rana
Eigandi fataverksmiðjunnar sem hrundi árið 2013 í Banglades með þeim afleiðingum að rúmlega 1100 manns létu lífið verður ákærður fyrir morð. Þarlend lögregluyfirvöld lýstu þessu yfir í dag. Eigandinn, Mohammed Sohel Rana, var handtekinn í apríl sama ár er hann reyndi að flýja yfir landamærin til Indlands eftir að Rana Plaza byggingin, sem stóð í útjaðri höfuðborgarinnar Dhaka, hrundi þann 24. apríl 2013. Bijoy Krishna Kar, sem farið hefur með rannsókn málsins, sagði í samtali við Agence France-Presse í dag að Rana og foreldrar hans verði meðal þeirra 42 sem ákærðir verða fyrir morð. Verði þau fundin sek er búist við að þau muni hljóta dauðarefsingu. Meira en 2430 verkamönnum var bjargað á lífi úr rústunum eftir að sex af níu hæðum byggingarinnar hrundu en þetta er þriðja mannskæðasta iðnaðarslys sögunnar. Einungis gasleki Union Carbide á Indlandi árið 1984 og sprengingin í Benxihu Colliery kolanámunni í Kína árið 1942 drógu fleiri til dauða. Tvær fataverksmiðjur í úthverfi Dhaka, höfuðborg Bangladess, urðu í vikunni þær fyrstu í landinu til þess að fá sérstaka vottun um öryggi en Samtök evrópskra fataframleiðenda komu vottunarkerfinu á fót í kjölfar slyssins í Rana Plaza árið 2013.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Sjá meira