Ekki fleiri aftökur í Nebraska Aðalsteinn Kjartansson skrifar 28. maí 2015 07:41 Þingið fór gegn ríkisstjóranum og bannaði dauðarefsingar. Vísir/CACorrections
Ríkisþingið í Nebraska í Bandaríkjunum hefur samþykkt lög sem banna dauðarefsingar. Bannið var samþykkt í óþökk ríkisstjóra fylkisins sem hafði neitað að staðfesta lögin en þingið nýtti sér heimild til að fara fram hjá neitunarvaldi ríkisstjórans.Nebraska er nítjánda ríkið til að samþykkja bann við dauðarefsingum en auk þess eru þær bannaðar í Washington, D.C. Enginn hefur verið tekinn af lífi í ríkinu síðan árið 1997. Lögin voru samþykkt með 30 atkvæðum gegn 19, en þau nutu stuðnings þingmanna úr bæði meirihluta og minnihluta þingsins. Repúblikanar eru í meirihluta á þinginu en ríkisstjóri Nebraska er einnig Repúblikani. Þingmenn flokksins sem samþykktu frumvarpið sögðu ýmist að praktískar, trúarlegar og siðferðilegar ástæður réðu afstöðu sinni. Bannið er samþykkt á sama tíma og önnur ríki reyna að finna nýjar leiðir til að framfylgja dauðarefsingum. Erfiðlega hefur gengið fyrir ríki að kaupa lyf sem notuð hafa verið til að taka fanga af lífi og samþykkti ríkisþingið í Utah nýverið að heimila notkun aftökusveita. Þrátt fyrir bannið getur bandaríska alríkisstjórnin enn látið taka fanga frá Nebraska af lífi. Bandaríkin eru eitt 36 landa þar sem fangar eru enn teknir af lífi en það er einnig gert í Afganistan, Kína, Japan, Norður-Kóreu og Sýrlandi.
Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Innlent Fleiri fréttir Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Sjá meira