Fyrrverandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings ákærður Jóhann Óli Eiðsson skrifar 29. maí 2015 08:35 Dennis Hastert vísir/getty
Dennis Hastert, fyrrum forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, greiddi fyrrverandi samstarfsmanni sínum 3,5 milljónir dollara, tæplega 475 milljónir íslenskra króna á núverandi gengi, til að hjálpa sér að hilma yfir skandal úr fortíð sinni. Þegar FBI spurði hann um undarlegar úttektir af bankareikningum hans laug hann um málið. Chicago Tribune greinir frá málinu. Hastert hefur verið ákærður vegna málsins og gæti, ef fundinn sekur, verið dæmdur í fimm ára fangelsi auk þess að greiða 250.000 dollara í sekt. Fyrstu úttektirnar af bankareikningi Hastert áttu sér stað árið 2010 og námu 1,7 milljónum dollara. Í ákæru segir að greiðslurnar hafi runnið til „einstaklings A“ sem hefur þekkt Hastert í nær allt sitt líf. A bjó um tíma í Yorkville en þar var Hastert kennari og glímuþjálfari á árunum 1965 til 1981. Ekki er farið nánar út í hvers vegna Hastert greiddi A fyrir að þegja. Hastert var þingmaður Illinois-ríkis frá 1987 til 2007 og var að auki forseti þingsins frá 1999-2007. Aðeins þrír forsetar hafa setið lengur en hann í þeim stóli en Hastert hefur setið lengst allra forseta úr röðum Repúblíkanaflokksins.
Tengdar fréttir Hastert ætlar ekki að víkja Dennis Hastert, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, ætlar ekki að segja af sér vegna hneyslismáls sem nú skekur Repúblíkanaflokkinn. Upp komst um það að fyrrverandi fulltrúardeildarþingmaður, Mark Foley, hefði sent klúr tölvupóstskeyti til ungra drengja sem unnu fyrir þingið. Foley hefur nú sagt af sér og beðist afsökunar á framferði sínu. Hastert segist þó bera fulla ábyrgð á að ekki hafi verið gripið í taumana fyrr. Hann sagðist gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerðist aftur. 5. október 2006 22:00 Segir af sér og fer í áfengismeðferð Tekið er að hitna undir Denis Hastert, leiðtoga repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vegna gagnrýni eigin flokksmanna á hvernig hann hefur tekið á hneykslismáli þingmannsins Marks Foley. 5. október 2006 06:15 Hastert biðst afsökunar Dennis Hastert forseti bandarísku fulltrúadeildarinnar hefur beðist afsökunar vegna kynlífshneykslis fyrrum þingmanns Repúblikana, Marks Foleys. Hann segist hins vegar ekki ætla að segja af sér. Hastert neitar fréttum þess efnis að hann hafi vitað af kynlífsskilaboðum Foleys en ekki gripið í taumana. Hann segist fyrst hafa fengið vitneskju um málið á föstudag. 6. október 2006 08:30 Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira
Hastert ætlar ekki að víkja Dennis Hastert, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, ætlar ekki að segja af sér vegna hneyslismáls sem nú skekur Repúblíkanaflokkinn. Upp komst um það að fyrrverandi fulltrúardeildarþingmaður, Mark Foley, hefði sent klúr tölvupóstskeyti til ungra drengja sem unnu fyrir þingið. Foley hefur nú sagt af sér og beðist afsökunar á framferði sínu. Hastert segist þó bera fulla ábyrgð á að ekki hafi verið gripið í taumana fyrr. Hann sagðist gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerðist aftur. 5. október 2006 22:00
Segir af sér og fer í áfengismeðferð Tekið er að hitna undir Denis Hastert, leiðtoga repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vegna gagnrýni eigin flokksmanna á hvernig hann hefur tekið á hneykslismáli þingmannsins Marks Foley. 5. október 2006 06:15
Hastert biðst afsökunar Dennis Hastert forseti bandarísku fulltrúadeildarinnar hefur beðist afsökunar vegna kynlífshneykslis fyrrum þingmanns Repúblikana, Marks Foleys. Hann segist hins vegar ekki ætla að segja af sér. Hastert neitar fréttum þess efnis að hann hafi vitað af kynlífsskilaboðum Foleys en ekki gripið í taumana. Hann segist fyrst hafa fengið vitneskju um málið á föstudag. 6. október 2006 08:30