Þýska leyniþjónustan sögð hafa njósnað um innlend fyrirtæki Bjarki Ármannsson skrifar 4. maí 2015 23:55 Angela Merkel Þýskalandskanslari. Vísir/AP
Þjarmað er að Angelu Merkel Þýskalandskanslara eftir ásakanir þess efnis að þýska leyniþjónustan (BND) hafi hjálpað Bandaríkjastjórn að njósna um þýsk fyrirtæki. Skýrsla BND sem lekið var í síðustu viku gefur til kynna að aðilar í Frakklandi og innan ESB hafi verið undir smásjánni hjá Þjóðverjunum. BND hefur oft starfað með bandarísku þjóðaröryggisstofnunni NSA í gegnum árin. Nú er hinsvegar ljóst að stofnanirnar tvær fylgdust ekki bara með hugsanlegum hryðjuverkamönnum. Nýja skýrslan gefur til kynna að fylgst hafi verið með bæði utanríkisráðuneytinu og forsetahöllinni í Frakklandi, ásamt fyrirtækinu Airbus og Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Sigmar Gabriel, varakanslari Þýskalands, hefur kallað eftir því að ítök BND verði að fullu rannsökuð og að stofnunin verði látin upplýsa þingið um alla þá sem fylgst var með að frumkvæði NSA. Hann hefur jafnframt spurt Merkel út í það hvort þýsk fyrirtæki hafi verið þar á meðal en kanslarinn neitar því staðfast. Merkel hefur tjáð sig um lekann og samstarf BND við NSA. Hún segir að ríkisstjórnin geri allt hvað hún geti við að aðstoða BND við að standa vörð um Þjóðverja og að stofnunin sé í stöðugu samstarfi við aðrar leyniþjónustur. Fyrst og fremst NSA. Greint var frá því árið 2013 að Merkel hefði sjálf orðið fyrir barðinu á njósnum Bandaríkjastjórnar. Þá sagði kanslarinn að það væri hreinlega ekki í boði að njósna um vinaþjóðir sínar.
Mest lesið Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Erlent Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Innlent Fleiri fréttir Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Sjá meira