Reykjavík dregur hagvöxtinn áfram á næstu árum Heimir Már Pétursson skrifar 15. apríl 2015 12:15
Framkvæmt verður fyrir tugi milljarða í Reykjavík á þessu ári og munar þar mest um mikla fjölgun hótelherbergja og stórar framkvæmdir við hafnarsvæði borgarinnar. Borgarstjóri segir útlit fyrir að Reykjavík muni draga áfram hagvöxt á Íslandi á næstu fimm til tíu árum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnti þær miklu framkvæmdir sem framundan eru í borginni á þessu ári á opnum kynningarfundi í ráðhúsinu í morgun. Borgin sjálf mun framkvæma fyrir tæpa tíu milljarða króna í skóla- og tómstundarbyggingum sem og ýmsum innviðum borgarinnar, en einkaaðilar munu hins vegar fara í enn meiri framkvæmdir en borgin samkvæmt þeim áætlunum sem þegar liggja fyrir. „Reykjavík mun draga hagvöxt á Íslandi alla vegna næstu fimm til tíu ár sýnist okkur. Í fyrsta lagi eru þetta miklar fjárfestingar í hótelum og ferðaþjónustu. Um fimmtán hundruð herbergi sem eru að klárast eða fara af stað á þessu ári og næsta. Í öðru lagi eru þetta miklar nýjar fjárfestingar í tengslum við þekkingariðnað við háskólana og Landsspítalann í Vatnsmýrinni,“ segir borgarstjóri. Þá séu í þriðja lagi mörg ný verkefni að koma inn á hafnarsvæðum borgarinnar; við Gömlu höfnina, Sundahöfn og höfnina á Grundartanga. „Og það eru mjög stórar tölur þar ef allt gengur eftir. Við erum líka að búa í haginn fyrir grænan iðnað á nýjum atvinnusvæðum. Við erum að opna ný blönduð svæði sem verða bæði íbúðir og atvinnusvæði í samræmi við nýja aðalskipulagið. Síðan á ég líka von á tíðindum af skapandi greinum og uppbyggingu í þágu þeirra. Þannig að þetta er bæði meira og miklu fjölbreyttara en við höfum séð áður,“ segir Dagur. Ráðist verður í breytingar á Geirsgötunni ofan við gömlu höfnina í sumar en gatnamótum hennar við Lækjargötu verður breytt í tengslum við þær miklu byggingaframkvæmdir sem framundan eru á reitunum milli Hörpu og Hafnarstrætis á næstu árum. Meðal annars verður ráðist í byggingu 250 herbergja hótels við Hörpu strax í haust eins og greint var frá í fréttum okkar í gær. Þá reiknar borgin með nýrri samgöngumiðstöð við BSÍ sem þjóna muni fjölbreyttum samgöngutækjum í og við borgina. Vestubæjarskóli verður stækkaður, framkvæmdir eru hafnar við stækkun Sundhallarinnar í Reykjavík og miklar framkvæmdir standa fyrir dyrum í efri byggðum borgarinnar bæði hvað varðar skóla og gatnakerfi.Við fjöllum nánar um þetta mál með myndrænum hætti í kvöldfréttum Bylgjunnar og Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent „Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Innlent Gífurleg fagnaðarlæti yfir sigurræðu Almars Innlent Fyrstu tölur í Garðabæ: Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig manni Innlent Meirihlutinn á Akureyri fallinn Innlent Fyrstu tölur í Hafnarfirði: Meirihlutinn heldur þvert á spár Innlent Lokatölur í Sveitarfélaginu Hornafirði: Framsókn bætir við sig og meirihlutinn fallinn Innlent Lokatölur í Húnaþingi vestra: N-listinn skákaði Framsókn Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Fleiri fréttir Lokatölur í Vestmannaeyjum: Sjálfstæðismenn með hreinan meirihluta Lokatölur í Ölfusi: Sjálfstæðismenn bæta við sig manni Gífurleg fagnaðarlæti yfir sigurræðu Almars Lokatölur í Sveitarfélaginu Hornafirði: Framsókn bætir við sig og meirihlutinn fallinn Lokatölur í Rangárþingi ytra: Á-listinn áfram með hreinan meirihluta Lokatölur í Grindavík: Miðflokkur tapar tveimur Lokatölur í Suðurnesjabæ: Meirihlutinn heldur velli Fyrstu tölur í Garðabæ: Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig manni E-listinn tveimur færri en meirihlutinn heldur í Vogum Lokatölur í Húnaþingi vestra: N-listinn skákaði Framsókn Meirihlutinn á Akureyri fallinn „Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Fyrstu tölur í Hafnarfirði: Meirihlutinn heldur þvert á spár Halla hlaut flest atkvæði í Fljótsdalshreppi Gísli Gunnar efstur í Grýtubakkahreppi Listi sveitarstjórans með flesta fulltrúa Í áfalli yfir fyrstu tölum úr Kópavogi Fyrstu tölur úr Kópavogi: Sjálfstæðisflokkur einn í meirihluta Sjálfkjörin í Kjósarhreppi Lokatölur úr Ásahreppi: Ísleifur og Helga efst með 86 atkvæði Nágrannaslagur í Vesturbænum 94 prósenta kjörsókn í Árneshreppi Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Aðalsteinn verður áfram sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Sjá meira