Laug Bill O´Reilly um átök í Argentínu? Samúel Karl Ólason skrifar 23. febrúar 2015 11:00 Bill O'Reilly. Vísir/AP
Saga Bill O‘Reilly um svaðilfarir sínar í Argentínu árið 1982 hefur verið dregin í efa af fyrrverandi samstarfsmönnum hans. Hann var þar á vegum CBS að fjalla um Falklandseyjastríðið og sagðist hafa verið á átakasvæði, séð hermenn stráfella borgara, að myndatökumaður hans hafi slasast og að hermaður hafi miðað byssu á hann. „Enginn man eftir því að þetta hafi gerst,“ segir Manny Alvarez, sem var myndatökumaður fyrir CBS og var í Buenos Aires á sama tíma. Þetta er haft eftir honum á vef CNN. Aðrir starfsmenn sjónvarpsstöðvarinnar sem CNN ræddi við kannast ekki við frásögn O‘Reilly.Tímaritið Mother Jones, birti fyrst grein um ósamræmi O‘Reilly og samstarfsmanna hans. O‘Reilly brást við með því að segja Mother Jones vera í herferð gegn sér og Fox News. Fox News og Bill O‘Reilly hafa ekki svarað fyrirspurn Mother Jones, en spurningar sem lagðar voru fyrir hann má sjá hér. CNN hefur rætt við nokkra þáverandi starfsmenn CBS en enginn þeirra kannast við þau atvik sem O‘Reilly hefur lýst. Þá kannast þáverandi starfsmannastjóri CBS ekki við að nokkur starfsmaður þeirra hafi slasast í Buenos Aires.O‘Reilly sagðist hafa þurft að draga myndatökumann sinn inn í hús eftir að hann hafi verið hlaupinn niður. Hann sagði hermenn hafa verið að skjóta borgara sem voru að mótmæla átökunum og að hermaður hafi nærri því skotið hann. Í fréttum af mótmælunum á þeim tíma kom hvergi fram að dauðsföll hafi orðið, en einhverjir slösuðust þó. Myndatökumaðurinn sem var með O‘Reilly vill ekki tjá sig um þetta atvik. CNN hefur þó eftir Miu Fabius, yfirmanni myndatökumannsins að hann hafi aldrei sagt frá því að hafa meiðst.Brian Williams.Vísir/APBrian Williams, sem hefur stýrt vinsælasta fréttaþætti Bandaríkjanna á NBC, viðurkenndi í síðasta mánuði að hafa logið því að þyrla hans hafi verið skotin niður í Írak. Williams var settur í sex mánaða launalaust leyfi á meðan rannsókn stendur yfir. Bill O‘Reilly hefur hins vegar ekki viðurkennt að hafa sagt rangt til um aðstæður í Argentínu. Þess í stað segir hann vinstri sinnaða fjölmiðla vera í herferð gegn sér. Hann segist ætla að sanna mál sitt í þætti sínum á Fox í kvöld.
Tengdar fréttir Laug til um upplifun sína sína af stríði Bandarískur fréttaþulur hefur beðist afsökunar á að hafa logið til um upplifun sína af því þegar skotið var á þyrlu sem hann sagðist hafa verið í í Írak árið 2003. 5. febrúar 2015 11:41 Mest lesið Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Truflanir víða vegna eldingaveðurs Innlent Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Fleiri fréttir Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Sjá meira
Laug til um upplifun sína sína af stríði Bandarískur fréttaþulur hefur beðist afsökunar á að hafa logið til um upplifun sína af því þegar skotið var á þyrlu sem hann sagðist hafa verið í í Írak árið 2003. 5. febrúar 2015 11:41