Í tæplega þriggja ára fangelsi fyrir vörslu barnakláms Birgir Olgeirsson skrifar 25. febrúar 2015 13:55 Aðalvarðstjóri tollstjóra stöðvaði Jón Sverri við komu til landsins.
Jón Sverrir Bragason hefur verið dæmdur til tveggja ára og átta mánaða fangelsisvistar fyrir vörslu á barnaklámi. Jón var stöðvaður af tollgæslunni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 1. ágúst í fyrra vegna gruns um að tölvur og minnislyklar sem hann hafði meðferðis innihéldu ólöglegt myndefni. Samkvæmt ákæru hafði Jón í vörslum sínum og skoðað samtals 45.236 ljósmyndir og 155 kvikmyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Myndefnið var ýmist á spjaldtölvu, fartölvum, minnislyklum og utan á liggjandi hörðum diskum. Í einhverjum tilvikum höfðu myndum eða kvikmyndum verið eytt af þessum tækjum. Voru munirnir haldlagðir og við rannsókn mun hafa komið í ljós mikið magn af meintu barnaklámi. Jón var tekinn í skýrslutöku og fór húsleit fram á dvalarstað hans hér á landi þann 19. ágúst í fyrra þar sem haldlagðar voru tölvur og gagnavörslumunir auk óskráðs loftriffils.Neitaði sök Jón neitaði sakargiftum hjá lögreglu og bar við að aðrir hafi haft aðgang að spjaldtölvu hans erlendis og hugsanlega hafi þeir halað niður umræddu efni en einnig hafi hann keypt notaða minnislykla á markaði í Kína og vera kynni að efnið hafi verið þar fyrir. Honum var með dómi gert að sæta farbanni þann 26. ágúst í fyrra og hefur sætt farbanni óslitið frá þeim tíma. Jón Sverrir er með lögheimili í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.Myndir af nöktum drengjum Við þingfestingu neitaði hann einnig sök sem og ítrekaði afstöðu sína við aðalmeðferð málsins. Aðalvarðstjóri hjá tollstjóra var kallaður til vitnis og sagðist hafa stöðvað Jón Sverri við komu til landsins og skoðað tölvur og minnislykla sem hann hafði meðferðis. Jón Sverrir opnaði sjálfur spjaldtölvu að sögn aðalvarðstjórans og komu í kjölfarið í ljós myndir af nöktum drengjum. Aðalvarðstjórinn sagðist hafa áður stöðvað Jón Sverri með mikið magn minnislykla án þess að þeir hafi þá verið skoðaðir.Braut gegn þroskaskertum dreng Aðalvarðstjórinn ákvað að skoða nánar hver ákærði væri og þá séð að hann var á reynslulausn og því ákveðið að skoða hann næst þegar kom til landsins. Jón Sverrir hafði árið 2010 verið dæmdur í fangelsi í þrjú ár og sex mánuði fyrir brot með því að hafa í nokkur skipti tælt þroskaskertan dreng til kynmaka. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness vegna vörslu Jóns Sverris á þessu myndefni kemur fram að hann eigi sér engar málsbætur og því dæmdur til tveggja ára og átta mánaða fangelsisvistar og þóttu ekki efni til að skilorðsbinda refsingu hans að hluta eða öllu leyti.
Tengdar fréttir Tekinn með barnaklám: Rauf skilorð en gengur enn laus Grun um mjög alvarlegt brot þarf til að dæma fanga á reynslulausn til að afplána eftirstöðvar sínar strax, segir fangelsismálastjóri. 28. ágúst 2014 16:08 Mest lesið Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing Innlent Sinueldur við Framheimilið Innlent „Við erum áratugum of sein“ Innlent Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ Innlent „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Innlent „Framsókn styður ekki bókun 35“ Innlent Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Innlent Fleiri fréttir Happdræti Háskólans varar við svikurum Íhugar að leggja á sykurskatt „Framsókn styður ekki bókun 35“ Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Sinueldur við Framheimilið Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Sjá meira
Tekinn með barnaklám: Rauf skilorð en gengur enn laus Grun um mjög alvarlegt brot þarf til að dæma fanga á reynslulausn til að afplána eftirstöðvar sínar strax, segir fangelsismálastjóri. 28. ágúst 2014 16:08