Tekinn með barnaklám: Rauf skilorð en gengur enn laus Bjarki Ármannsson skrifar 28. ágúst 2014 16:08
Jón Sverrir Bragason, sem stöðvaður var 1. ágúst með barnaklám í fórum sínum og úrskurðaður í farbann í kjölfarið, er á reynslulausn eftir að hafa afplánað tvö og hálft ár af þriggja og hálfs árs fangelsisdómi. Jón Sverrir var stöðvaður í Leifsstöð við komu til landsins með tvær fartölvur og sex minnislykla sem nú eru til rannsóknar. Þrátt fyrir að hafa brotið gegn lögum á reynslulausn hefur hann ekki verið dæmdur til að afplána eftirstöðvar refsingar sinnar. Páll Winkel fangelsismálastjóri segist ekki geta tjáð sig um þetta mál sérstaklega en útskýrir að almennt geti dómstólar ekki dæmt aðila á reynslulausn strax til að afplána eftirstöðvar dóms síns nema rökstuddur grunur sé til staðar um að viðkomandi hafi framið brot sem varðar sex ára fangelsisdóm hið minnsta. „Það er dómstóla að úrskurða viðkomandi inn á eftirstöðvar, eins og kallað er,“ segir Páll. „Væntanlega hefur ákæruvaldið metið það svo þarna að þetta væri ekki svo alvarlegt brot.“ Samkvæmt dómi Hæstaréttar frá því á þriðjudag er Jón Sverrir grunaður um brot samkvæmt 210. grein almennra hegningarlaga sem getur mest varðað tveggja ára fangelsisdóm. „Þetta endar væntanlega með því að þetta mál er rannsakað, svo er ákært fyrir það,“ segir Páll. „Svo er dæmd ein refsing fyrir nýja brotið og svo það sem hann átti eftir.“ Jón Sverrir var dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar árið 2010 vegna kynferðisbrota gegn þroskaheftum dreng. Reynslulausn kemur til álita hjá þeim sem dæmdir eru fyrir kynferðisbrot gegn börnum þegar búið er að afplána tvo þriðju hluta refsingar, og þá að ýmsum skilyrðum uppfylltum.
Tengdar fréttir Íslendingur í farbann: 36 þúsund barnaklámsmyndir á tölvu sinni Lögregla reynir að endurheimta myndbönd af tölvum og minniskubbum Jóns Sverrir Bragasonar, dæmds kynferðisbrotamanns, en talið er að þau innihaldi kynferðisbrot. 27. ágúst 2014 16:17 Þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann um sextugt, Jón Sverri Bragason, til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng sem var á aldrinum þrettán til fimmtán ára þegar brotin voru framin. Að auki er manninum gert að greiða drengnum eina og hálfa milljón króna í bætur. 20. maí 2010 16:45 Mest lesið Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Við erum áratugum of sein“ Innlent Sinueldur við Framheimilið Innlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Innlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Fleiri fréttir Happdræti Háskólans varar við svikurum Íhugar að leggja á sykurskatt „Framsókn styður ekki bókun 35“ Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Sinueldur við Framheimilið Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Sjá meira
Íslendingur í farbann: 36 þúsund barnaklámsmyndir á tölvu sinni Lögregla reynir að endurheimta myndbönd af tölvum og minniskubbum Jóns Sverrir Bragasonar, dæmds kynferðisbrotamanns, en talið er að þau innihaldi kynferðisbrot. 27. ágúst 2014 16:17
Þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann um sextugt, Jón Sverri Bragason, til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng sem var á aldrinum þrettán til fimmtán ára þegar brotin voru framin. Að auki er manninum gert að greiða drengnum eina og hálfa milljón króna í bætur. 20. maí 2010 16:45