Vilja tryggja rekstargrundvöll Náttúruminjasafns Atli Ísleifsson skrifar 25. febrúar 2015 13:59 Stjórnir félaganna segja stöðu Náttúruminjasafns Íslands vera algerlega óásættanlega. Vísir/Valli
Stjórn Félags íslenskra safna- og safnmanna (FÍSOS) og Félags íslenskra safnafræðinga (FÍS) skora á Alþingi og mennta- og menningarmálaráðuneyti að móta metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir uppbyggingu á starfsemi Náttúruminjasafns Íslands. Í ályktun frá félögunum segir að tryggja beri rekstargrundvöll safnsins svo sómi verði að fyrir þjóðina. Segir að staða Náttúruminjasafns Íslands sé algerlega óásættanleg, sem höfuðsafn þjóðarinnar í náttúrufræðum. „Náttúruminjasafn Íslands er eitt höfuðsafnanna þriggja sem eru í eigu hins opinbera og eiga lögum samkvæmt að vera leiðandi í faglegu safnastarfi. Höfuðsöfnin þrjú, Náttúruminjasafn Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og Listasafn Íslands gegna því mikilvæga hlutverki að vera grunnstoð í miðlun og varðveislu á náttúruarfi þjóðarinnar og menningu. Um starfsemi íslenskra safna gilda lög nr. 141/2011 svokölluð safnalög, þau eru sett til þess „að efla starfsemi safna við varðveislu menningar-og náttúruarfs Íslands, tryggja að honum verði skilað óspilltum tilkomandi kynslóða, veita fólki aðgang að honum og stuðla að aukinni þekkingu á þessari arfleifð og skilningi á tengslum hennar við umheiminn“ (1.gr. Tilgangur). Í 5. gr. safnalaga segir ennfremur: Söfn eru opin almenningi og safna, varðveita, rannsaka og miðla því sem er til vitnis um manninn, sögu hans og menningu, náttúru og umhverfi í nafni samfélagsins og til framgangs þess. Þau skulu hafa að leiðarljósi að efla skilning á þróun og stöðu menningar, lista, náttúru eða vísinda. Það er skýlaus krafa að hið opinbera axli þá ábyrgð sem því ber,og leggi sitt að mörkum til uppbyggingar Náttúruminjasafns Íslands. Það er forgangsmálað tryggja safninu húsnæði og sýningaraðstöðu til frambúðar. Öflugt náttúruminjasafn styrkir menntakerfið, menningarlífið og stuðlarað aukinni þekkingu á náttúru landsins og skilningi á tengslum hennar við umheiminn. Aukinn skilningur okkar á náttúru Íslands er eitthvert brýnasta og mest aðkallandi verkefni samtímans,“ segir í ályktuninni.
Tengdar fréttir Algjör óvissa er um Náttúruminjasafnið Borgarstjóri segir aðbúnað Náttúruminjasafns Íslands hafa verið þjóðarskömm um árabil. Garðabær vildi fá safnið til sín en því var hafnað og ákveðið að safnið skyldi í Perluna. Ekkert bólar á þeim flutningum. Algjör óvissa er um málið. 20. febrúar 2015 09:00 Niðurstöðu að vænta um sýningu í Perlu Ekki verður byggt yfir Náttúruminjasafn á næstu árum. Samningar um sýningu í Perlunni á lokastigum. 23. febrúar 2015 07:00 Höfuðsafn á leið á götuna Leigusamningi Náttúruminjasafnsins hefur verið sagt upp. Algjör óvissa er um öll húsnæðismál þess, en sýningarrými hefur ekkert verið um árabil. Grunnsýning í Perlunni stendur og fellur með ákvörðun ráðherra. 19. febrúar 2015 06:00 Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Innlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Innlent Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Erlent Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Innlent Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent Fleiri fréttir Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap Sjá meira
Algjör óvissa er um Náttúruminjasafnið Borgarstjóri segir aðbúnað Náttúruminjasafns Íslands hafa verið þjóðarskömm um árabil. Garðabær vildi fá safnið til sín en því var hafnað og ákveðið að safnið skyldi í Perluna. Ekkert bólar á þeim flutningum. Algjör óvissa er um málið. 20. febrúar 2015 09:00
Niðurstöðu að vænta um sýningu í Perlu Ekki verður byggt yfir Náttúruminjasafn á næstu árum. Samningar um sýningu í Perlunni á lokastigum. 23. febrúar 2015 07:00
Höfuðsafn á leið á götuna Leigusamningi Náttúruminjasafnsins hefur verið sagt upp. Algjör óvissa er um öll húsnæðismál þess, en sýningarrými hefur ekkert verið um árabil. Grunnsýning í Perlunni stendur og fellur með ákvörðun ráðherra. 19. febrúar 2015 06:00