Fyrstu myndirnar úr „Air Force Un“ Atli Ísleifsson skrifar 17. febrúar 2015 10:01 Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, við skrifborð sitt í vélinni. Vísir/AFP
Norður-kóreski ríkismiðillinn KCNA hefur birt fyrstu myndirnar úr einkaflugvél Kim Jong-un, leiðtoga landsins. Ekki er tilviljun að myndirnar eru birtar nú þar sem styttist óðum í fyrstu utanlandsferð Kim í embætti, en hann fer brátt í opinbera heimsókn til Rússlands.Í frétt Verdens Gang segir að tuttugu ár séu nú liðin frá því að síðasta IL-62 vélin var framleidd en vélin hefur nú verið endurbætt að innan og er reiðubúin í flug til Rússlands. Vélin er ein af fáum vélum norður-kóreska flugflotans sem getur flogið frá norður-kóresku höfuðborginni Pyongyang til Moskvu án millilendingar. Vélin sem um ræðir er Iluyshin Il-62 sem voru framleiddar í Sovétríkjunum og síðar Rússlandi á árinum 1963 til 1995. Vélin er 53 metrar að lengd og með 43,2 metra vænghaf. Vélarnar geta vanalega flutt 168 til 186 farþega, ná hæst 900 kílómetra hraða og geta flogið 10 þúsund kílómetra í einu. Vélarnar voru á sínum tíma seldar til Tékkóslóvakíu, Austur-Þýskalands, Súdan og Norður-Kóreu. Fjögur flugfélög notast enn við vélarnar: Rossiya, Air Kroyo, Trust Air og Ukraine Air Enterprise. Ekki er ljóst hvað endurbætt vél leiðtogans er nákvæmlega gömul. Sumar heimildir kveða á um að vélin sé frá sjöunda áratugnum, en aðrar að hún sé frá þeim áttunda. Burtséð frá því má leiða líkum að því að þetta sé elsta „forsetavél“ í heimi.Leiðtoginn ræðir við Hwang Pyong So, einn leiðtoga Kommúnistaflokksins, í vélinni.Vélin á flugi yfir Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu.Vísir/AFP
Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent Stúlkan er fundin Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Fleiri fréttir Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sjá meira