Krefjast þess að dómur yfir sádi-arabískum bloggara verði ógiltur Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2015 13:02 Raif Badawi var á síðasta ári dæmdur í 10 ára fangelsi og til að sæta þúsund svipuhöggum. Auk þess var honum bannað að ferðast í 10 ár eftir að hann er leystur úr haldi, bannað að skoða fréttamiðla og dæmdur til að greiða um 30 milljónir króna í sekt. Mynd/Amnesty
Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa ákveðið að fresta fyrirhugaðri hýðingu á bloggaranum Raif Badawi. Til stóð að hann fengi fimmtíu svipuhögg á morgun en læknar álíta hann ekki vera í standi til þess eftir að hafa hlotið fimmtíu högg þann 9. janúar síðastliðinn.Í frétt Guardian segir að Badawi eigi yfir höfði sér tíu ára fangelsi og 950 svipuhögg til viðbótar næstu nítján vikurnar auk sektargreiðslu vegna skrifa sinna á bloggsíðu sinni. Badawi var tekinn höndum árið 2012. Mál Badawi hefur vakið mikla athygli á alþjóðavísu og hafa mannréttindasamtökin Amnesty International látið málið sér varða. Í fréttatilkynningu frá samtökunum segir að stjórnvöld í Sádí-Arabíu hafi fordæmt árásina á Charlie Hebdo í París og lýst henni sem heigulsverki. „Næsta dag beittu stjórnvöld í Sádí-Arabíu villimannlegri refsingu gegn Raif Badawi fyrir að nýta tjáningarfrelsið. Þessa hræsni stjórnvalda í Sádí-Arabíu verður að afhjúpa.“ Raif Badawi fékk fyrstu fimmtíu svipuhöggin þann 9. janúar, en að sögn vitna var hann fluttur í járnum að torgi fyrir framan moskuna eftir að bænastund lauk. Þar hafi hann fengið fimmtíu svipuhögg á bak og fætur í viðurvist almennings og fulltrúa stjórnvalda.Fimmtíu högg á fimmtán mínútum „Sjónarvottur sagði að Raif Badawi hafi ekki sagt neitt en augljóst hafi verið að hann hafi kvalist mikið. Refsingin tók 15 mínútur. Að því loknu var ekið með hann í burtu. Óttast er að Raif Badawi muni sæta frekari húðstrýkingu. Í dómsorði yfir honum er kveðið á um að hann eigi að sæta eigi fleiri en 50 svipuhöggum í hvert sinn og að vika hið minnsta skuli líða milli húðstrýkinga. Þessi refsing brýtur í bága við algert bann gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð og refsingu í alþjóðalögum. Föstudaginn 16. janúar var Raif Badawi fluttur úr klefa sínum og færður á læknastofu til skoðunar í fangelsinu þar sem hann er vistaður. Þar var lækni fangelsins gert að skera úr um fresta ætti annarri umferð húðstrýkinga vegna sára sem Raif hlaut við sömu refsingu viku áður. Læknirinn úrskurðaði að Raif myndi ekki þola frekari svipuhögg í bráð þar sem sárin væru ekki gróin. Óttast er að hann muni sæta 50 svipuhöggum til viðbótar á morgun, föstudaginn 23. janúar, þrátt fyrir fjölda mótmæla fyrir framan sendiráð Sádí-Arabíu um heim allan og áköll frá ýmsum opinberum aðilum þeirra, á meðal mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna sem sagði húðstrýkingu „í það minnsta vera tilbrigði við grimmilega og ómannlega refsingu...sem bönnuð er samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum, sérstaklega samningnum gegn pyndingum sem Sádí-Arabía hefur fullgilt“.Vanvirti íslam Raif Badawi var dæmdur þann 7. maí 2014 í 10 ára fangelsi og til að sæta 1.000 svipuhöggum. Auk þess var honum bannað að ferðast í 10 ár eftir að hann er leystur úr haldi, honum bannað að skoða fréttamiðla og hann dæmdur til að greiða um 30 milljónir króna í sekt. Dómurinn yfir honum kom í kjölfar þess að hann stofnaði vefsíðu helgaða frjálslyndi. Hann var talinn hafa „vanvirt íslam“. Sms-félagar Íslandsdeildar Amnesty International mótmæla nú harðlega þeirri refsingu sem Raif Badawi sætir og þrýsta á stjórnvöld að sleppa honum tafarlaust og án skilyrða úr haldi vegna þess að hann er samviskufangi og í haldi fyrir friðsamlega tjáningu skoðana sinna. Þeir hvetja stjórnvöld til að ógilda dóminn yfir honum,“ segir í tilkynningunni frá Amnesty.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Fleiri fréttir Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Sjá meira