Háttsettir yfirmenn í Kína sakaðir um ólöglegt salamöndruát Bjarki Ármannsson skrifar 27. janúar 2015 22:55 Matarboð mannanna gæti hafa komið þeim í klandur. Vísir/Getty
Yfirvöld í Kína rannsaka nú hvort eitthvað sé til í því að háttsettir yfirmenn öryggisgæslunnar þar í landi hafi lagt sér risasalamöndru til munns í íburðarmiklu kvöldmatarboði í síðustu viku. Risasalamöndrur, sem geta orðið nærri 180 sentímetrar að lengd, þykja herramannsmatur í Kína en eru líka í bráðri útrýmingarhættu.BBC greinir frá. Dagblað í borginni Shenzen greindi frá hinnu meintu kvöldmáltíð í síðustu viku en talsmenn blaðsins segja að tveir blaðamenn og ljósmyndari sem stálust inn á veitingastaðinn þar sem máltíðin átti að hafa farið fram hafi verið lamdir í kjölfarið. Símum þeirra og tækjabúnaði hafi einnig verið stolið. Xi Jinping, forseti Kína, hefur lýst því yfir að hann vilji berjast gegn spillingu innan hins opinbera í landinu. Jafnframt voru refsiviðurlög hert í fyrra fyrir þá sem matreiða villt dýr í útrýmingarhættu. Þrátt fyrir þetta fullyrðir dagblaðið að matarboð hafi verið haldið fyrir um 28 manns fyrir almannafé þar sem eitt stykki risasalamandra var á boðstólum. Ríkisfréttaveita Kína, Xinhua, segir að fjórtán lögreglumenn hafi verið leystir frá störfum vegna málsins en ekki er ljóst hvort þeir eigi að hafa verið gestir í matarboðinu eða tekið þátt í stympingunum eftir á.
Mest lesið Klara Baldursdóttir er látin Innlent Konan sem féll í Brúará er látin Innlent Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Erlent „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Innlent Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Innlent „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Stærsta árásin á Kharkív hingað til Erlent Aftur logar eldur í Læradal Erlent Fleiri fréttir Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Reyna að stilla til friðar með símtali Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Bras á breska Umbótaflokknum þrátt fyrir velgengnina Brotlentu öðru einkafari á tunglinu Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Ákærð fyrir að myrða táning en líkið enn ófundið Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Fíll ruddist inn í matvöruverslun Bannar nú erlenda nemendur í Harvard á grunni þjóðaröryggis Felldu tillögu um að olíusjóðurinn sniðgengi fyrirtæki á hernumdu svæðunum Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Endurvekur ferðabannið Telja rúmensk glæpagengi smygla matarsendlum inn í Ósló Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Svíar leigja fangelsispláss í Eistlandi Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Rýming í Köln vegna þriggja sprengja frá seinni heimsstyrjöldinni Aftur hafin leit að Madeleine McCann Andstæðingi forsetans brottrekna spáð sigri í forsetakosningum Sjá meira