Öskureið eiginkona skar tvisvar undan eiginmanni sínum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. janúar 2015 11:04 Læknar og lögreglumenn leituðu í lengri tíma að limnum fyrir utan húsið en án árangurs. Talið er líklegast að flækingshundur eða - köttur hafi orðið fyrri til. Mynd/CEN
Ósátt eiginkona í borginni Shangqiu í Kína hefur verið handtekinn fyrir að hafa skorið undan eiginmanni sínum. Hún lét ekki nægja að gera það einu sinni heldur endurtók verknaðinn eftir að gert hafði verið að sárum mannsins.Breskir fjölmiðlar á borð við Mirror greina frá þessu og vísa í umfjöllun kínverskra miðla. Þar segir að hinn 32 ára Fan Lung, fimm barna faðir, hafi sent klúr skilaboð til 21 árs gamallar ástkonu sinnar. Lung gleymdi hins vegar að skrá sig út af aðgangi sínum og var þrítugri eiginkonu hans ekki skemmt er hún rakst á skilaboðin. Konan er sögð hafa gripið skæri, farið rakleiðis í svefnherbergið þar sem maður hennar svaf og klippt af honum typpið. Lung var fluttur á spítala þar sem gert var að sárum hans og limurinn saumaður á.Fleygði limnum út um gluggann Reiðin var hins vegar ekki runnin af eiginkonunni sem laumaðist aftur inn á spítalann, skar aftur undan manninum og gott betur en það því í þetta skiptið fleygði hún limnum út um glugga. Talsmaður spítalans í borginni segir að spítalinn hafi fyrst haft veður af síðari árásinni þegar ábending barst um að nakinn maður væri að berja konu fyrir utan spítalann. Starfsfólk hafi hlaupið út og séð sjúkling slá til konu en blóð streymdi niður með fótleggjum hans. Læknar og lögreglumenn leituðu í lengri tíma að limnum fyrir utan húsið en án árangurs. Talið er líklegast að flækingshundur eða - köttur hafi orðið fyrri til.Getuleysi skiptir engu Farið var með Lung í aðgerð þar sem hann hafði misst mikið blóð. Líðan hans er sögð stöðug en andlegt ástand hans slæmt. Ástkona Lung sagði við komuna á spítalann að hún hefði enn í hyggju að giftast Lung við fyrsta tækifæri. „Það skiptir engu þótt hann sé getulaus. Hann á fimm börn nú þegar.“ Eiginkona Lung er í haldi lögreglu.
Mest lesið Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Erlent Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Innlent Fleiri fréttir Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Sjá meira