Svíar líta á sig sem fórnarlamb geðþáttaákvörðunar FIFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júní 2015 19:00 Vísir/AP
Sænska kvennalandsliðið, sem er í fimmta sæti heimslistans, er hugsanlega á heimleið frá HM kvenna í fótbolta eftir að hafa gert jafntefli í öllum þremur leikjum liðsins í riðlakeppni HM í Kanada. Svíarnir þurfa að treysta á úrslit úr öðrum riðlum til þess að komast áfram sem eitt af fjórum liðum með besta árangur í þriðja sæti. Blaðamaður Dagens Nyheter skrifar grein í dag þar sem hann segir Svía vera fórnarlamb geðþáttaákvörðunar FIFA. Svíar eru ekki sáttir með að hafa verið teknir úr fyrsta styrkleikaflokki þegar dregið var í riðla en svo fór að lokum að sænska liðið lenti í mjög erfiðum riðli með Bandaríkjunum, Ástralíu og Nígeríu. Svíar gerði markalaust jafntefli við bandaríska liðið, 3-3 jafntefli við Nígeríu og loks 1-1 jafntefli í lokaleiknum við Ástralíu í leik sem liðið mátti alls ekki tapa. Svíar áttu að öllu eðlilegu að vera í fyrsta styrkleikaflokki í HM-drættinum en FIFA ákvað að taka af þeim sætið og hleypa Brasilíumönnum þess í stað upp í efsta flokkinn þar sem Alþjóðasambandið vildi sjá fulltrúa fleiri heimsálfa meðal þeirra sex þjóða sem skipuðu efsta styrkleikaflokknum. Svíþjóð og Bandaríkin lentu því saman í riðli en bæði eru þau í hóp fimm bestu landsliða heims samkvæmt styrkleikalista FUFA. Ástralir eru síðan í 10. sæti á FIFA-listanum. Brasilíumenn lentu aftur á móti í riðli með Spáni (14. sæti), Suður-Kóreu (18. sæti) og Kosta Ríka (37. sæti). Hollendingar, Kamerún og Sviss eru öll komin áfram í sextán liða úrslit í sinni fyrstu heimsmeistarakeppni enda í mun léttari riðlum en sænsku stelpurnar munu hinsvegar naga neglur yfir leikjum kvöldsins. Norðmenn voru mun heppnari með riðil þrátt fyrir að hafa lent í riðli með Þýskalandi því hin liðin voru Tæland (29. sæti á FIFA-listanum) og Fílabeinsströndin (67. sæti). Svíar voru með þrjú stig og markatöluna 4-4 eftir riðlakeppnina og það gæti dugað þeim til að komast áfram upp úr 3. sæti. Sviss og Holland urðu líka í 3. sæti í sínum riðlum en eru með betri árangur en Svíþjóð og hafa þegar tryggt sér tvö af þeim fjórum sætum sem liðin í 3. sæti riðlanna sex fá. Það er jafnframt ljóst að árangur Tæland dugar ekki og þær tælensku eru því úr leik. Liðin sem enda í þriðja sæti í E- og F-riðli geta hinsvegar bæði verið fyrir ofan Svíana. Mestar vonir Svíana liggja í því að liðið úr þriðja sæti E-riðils nái ekki betri árangri. Leikirnir í E-riðli hefjast þó ekki fyrr en klukkan 23.00 í kvöld. Það stefnir því í stresskvöld hjá sænsku stelpunum út í Kanada.
Fótbolti Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Fleiri fréttir Jökull rekinn frá Stjörnunni Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool ÍA – Víkingur R. | Toppliðið í bikarleik uppi á Skaga Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Elísa Lana tryggði Kristianstad jafntefli Kanada - Bosnía | Annar opnunarleikur HM Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Sjá meira