„Að koma fram við konur eins og annars flokks borgara er slæm hefð“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 27. júlí 2015 08:25 Barack Obama forseti Bandaríkjanna uppskar mikið lófatak úr sal. „
Að koma fram við konur eins og óæðri borgara er slæm hefð,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti, í ræðu sem hann hélt í heimsókn sinni til Kenía yfir helgina. Obama fordæmdi kúgun kvenna í ræðu sinni, ekki aðeins vegna spurningarinnar um hvað sé rétt og rangt heldur einnig að land sem ekki ræktaði annan helming þegna sinna væri dæmt til þess að eiga erfitt uppdráttar í efnahagskerfi heimsins. Þrumuræðu forsetans má sjá hér að neðan. Obama uppskar mikil fagnaðarlæti úr sal en um fimm þúsund Keníubúar voru viðstaddir ræðuhöld forsetans. Heimsóknin var sérstök fyrir þá staðreynd að faðir Obama kom frá Keníu. „Hvert einasta land og hver einasta menning hefur einkenni og sögu sem er einstök og gera landið að því sem það er. En bara vegna þess að eitthvað er hluti af fortíð þinni þá þýðir það ekki þar með að það sé rétt, það þýðir ekki að það skilgreini framtíð þína.“ Obama nefndi umræðuna í kringum Suðurríkjafánann og merkingu hans. Obama sagði fánann að sjálfsögðu mikilvægan í sögulegu samhengi en að ekki sé hægt að horfa framhjá því að þeir sem flögguðu fánanum hafi barist fyrir þrælahaldi og undirokun ákveðinna kynþátta. Fáninn var tekinn niður nýlega. „Bara af því að eitthvað er hefð þá þýðir það ekki að það sé rétt,“ endurtók Obama."Treating women as second-class citizens is a bad tradition. It holds you back. There's no excuse for sexual assault or...Posted by The White House on Sunday, July 26, 2015Engin afsökun til fyrir kynferðislegu ofbeldi „Það er hefð í sumum löndum víðsvegar um heiminn að kúga konur og koma öðruvísi fram við þær, gefa þeim ekki sömu tækifæri, og að menn lemji konurnar sínar og að börn séu ekki send í skóla. Þetta eru hefðir, að koma fram við konur eins og annars flokks borgara, þetta eru slæmar hefðir. Þær þurfa að breytast. Þær eru að halda aftur af ykkur. Að koma fram við konur eins og annars flokks borgara er slæm hefð,“ sagði Obama og lagði áherslu á orð sín. „Það er engin afsökun fyrir kynferðislegu ofbeldi eða heimilisofbeldi, ungar stúlkur ættu ekki að þurfa að þola afskræmingu kynfæra sinna.“ Obama sagði að þetta væru mögulega hefðir sem hefðu viðgengist í margar aldir en að þessar hefðir ættu ekki heima á 21. öldinni. „Þetta er spurning um rétt eða rangt. Sama um hvaða menningu ræðir.“ Obama fundaði með forsetanum í Kenía og öðrum ráðamönnum. Rætt var um viðskipti, fjárfestingar, öryggismál og baráttuna gegn skipulögðum hryðjuverkum. Þá ræddi hann jafnframt hjónabönd samkynhneigðra, en í Kenía eru samkynja hjónabönd ekki viðurkennd og getur varðað fangelsi. Obama er nú staddur í Eþíópíu þar sem hann mun funda með leiðtogum landsins um borgarastríðið í Suður-Súdan og ávarpa Afríkusambandið. Um er að ræða fyrstu opinberu heimsókn sitjandi forseta í landinu.
Mest lesið Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira