Bandaríkin og Eþíópía ætla að auka samstarf sitt Heimir Már Pétursson skrifar 27. júlí 2015 19:57
Eþíópíumennn og Bandaríkjamenn ætla að efla samstarf sitt í baráttunni gegn hryðjuverkum og friði í nágrannaríkinu Sómalíu. Þá heita leiðtogar landanna að vinna að eflingu lýðræðis í Afríku. Barack Obama forseti Bandaríkjanna átti fund með forsætisráðherra Eþíópíu í dag. En Eþíópía er ungt lýðræðisríki þar sem fyrstu fjölflokka kosningarnar fóru fram árið 1994 og á landamæri að Kenya, Eritreu og Sómalíu þar sem róstursamt hefur verið undanfarin ár. Hailemariam Desalegn, forsætisráðherra Eþíópíu, segir ríkin staðráðin í að vinna saman gegn hryðjuverkum á svæðinu og varanlegum friði í nágrannaríkinu Suður-Súdan. Desalegn segir hann og forsetann hafa rætt samvinnu á ýmsum sviðum. „Við eru sammála um að vinna náið saman að málefnum Suður-Súdan til að vinna að varanlegum frið í því stríðhrjáða landi. Við erum einnig sammála um stuðla að friði í Sómalíu með því að aðstoða við uppbyggingu sterkra stofnana og með því að styrkja öryggissveitir í baráttu þeirra fyrir að ná stjórn á sínu eigin landi,“ sagði Desalegn að loknum fundi með Obama. Þá ætla ríkin að efla samvinnu sína í baráttuni gegn hryðjuverkum og vexti öfgahópa. Obama hefur verið tíðrætt um lýðræðismál, réttindi kvenna og samkynhneigðra í heimsókn sinni til ríkja Afríku undanfarna daga. „Stjórn mín hefur ítrekað vilja sinn til að skuldbinda sig til að dýpka það lýðræðislega ferli sem nú þegar er í gangi í landi okkar og vinna að því að virðing sé borin fyrir mannréttindum og bættum stjórnarháttum,“ sagði Desalegn. Obama undirstrikaði mikilvægi samvinnu í baráttunni gegn vexti öfgahópa. „Ég tel að þegar raddir allra fá að heyrast finnist fólki það vera hluti af hinu pólitíska ferli sem gerir hvert ríki sterkara, árangursríkara og eykur frumkvæði. Þannig að við ræddum skref sem Eþíópía gæti tekið til að bæta stjórnarhætti, til að verja mannréttindi, grundvallarfrelsi og til að styrkja lýðræðið. Við höfum í hyggju að dýpka samtal okkar um þessi mál því við höfum mikla trú framtíð Eþíópíu og þegnum landsins,“ sagði Barack Obama á sameiginlegum blaðamannafundi með forsætisráðherra Eþíópíu í dag.
Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Erlent Aflvana togari hættulega nálægt landi Innlent Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Innlent Séra Þórir Stephensen er látinn Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Sjá meira