England í undanúrslit í fyrsta sinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. júní 2015 10:20
England lagði gestgjafa Kanada, 2-1, í 8-liða úrslitum HM kvenna í nótt. Englendingar komust þar með í fyrsta sinn í undanúrslit HM í knattspyrnu. England vann Noreg í 8-liða úrslitum en það var fyrsti sigur liðsins í útsláttarkeppni HM frá upphafi. 54 þúsund áhorfendur voru á leiknum í Vancouver í nótt, langflestir á bandi heimamanna. En þeir voru slegnir út af laginu þegar England komst í 2-0 forystu strax á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. Heimamenn fóru reyndar illa með gott færi á upphafsmínútum og var svo refsað eftir varnarmistök er Jodie Taylor skoraði á elleftu mínútu leiksins. Aðeins þremur mínútum síðar komst England aftur á blað. Lucy Bronze skallaði þá fyrirgjöf Fara Williams úr aukaspyrnu í netið. Katie Chapman skallaði svo í stöng eftir aðra aukaspyrnu Williams stuttu síðar en eftir það sóttu heimamenn í sig veðrið og uppskáru mark þegar lítið var eftir af fyrri hálfleik. Christine Sinclair skoraði af stuttu færi eftir vel útfærða sókn. Þrátt fyrir að hafa verið nokkuð með boltann gekk Kanada illa að skapa sér almennileg færi. Englendingar gerðu nóg til að klára leikinn og var sætinu í undanúrslitunum vel fagnað í leikslok. England mætir heimsmeisturum Japan í undanúrslitum í Edmonton á miðvikudag en Japan vann Ástralíu, 1-0, í sinni viðureign í 8-liða úrslitum.
Fótbolti Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Sjá meira