Fótbolti

Leikmaður hneig niður og lést í leik í Malasíu

David Faramola Oniya.
David Faramola Oniya.
Nígeríski varnarmaðurinn David Faramola Oniya hneig niður í leik með liði sínu T-Team í æfingaleik gegn Kelanta fyrr í dag og lést á sjúkrahúsi skömmu síðar.

Oniya var þrítugur að aldri. Hann hneig niður á þriðju mínútu leiksins og var fluttur á sjúkrahús. Á 60. mínútu leiksins bárust fréttir af andláti hans og leikurinn var í kjölfarið flautaður af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×