Arnór reiknar með að fara frá Helsingborg Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. nóvember 2015 16:08 Arnór Smárason fagnar marki í leik með íslenska landsliðinu árið 2012. Vísir/Getty
Arnór Smárason reiknar síður með því að vera áfram í herbúðum Helsingborg í Svíþjóð en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Arnór hefur verið á mála hjá Helsingborg síðan 2013 en var lánaður til rússneska félagsins Torpedo Moskvu þar sem hann var fram á mitt sumar. Þegar hann sneri til baka fékk hann þau skilaboð frá félaginu að það vildi losna við hann vegna slæmrar fjárhagsstöðu. Arnór ákvað hins vegar að vera um kyrrt. „Ég fékk þau skilaboð að ef ég myndi vera áfram þá fengi ég ekkert að spila. En það breyttist,“ sagði Arnór sem nýtti þær mínútur sem hann fékk vel. Þegar uppi var staðið skoraði hann fimm mörk í fjórtán leikjum og var í byrjunarliðinu síðustu níu deildarleiki Helsingborg. „Ég náði að byrja alla leiki síðan að það var lokað fyrir félagaskipti. Það var mjög fínt að ná að snúa dæminu mér í hag.“ Hann segir að fjárhagsstaða félagsins sé óbreytt og því reikni hann með því að fara til nýs félags á nýju ári. „Ég finn fyrir miklum áhuga frá liðum bæði í Skandinavíu og á meginlandinu. Ég á í góðu samstarfi við félagið um þessi mál og það er gott að geta klárað þetta á góðum nótum.“ Arnór á sautján A-landsleiki að baki og hefur skorað í þeim tvö mörk. Hann spilaði síðast í ársbyrjun 2014 en vonast til að vinna sér sætinu í liðinu fyrir EM næsta sumar. „Ég reikna ekki með því,“ segir Arnór þegar hann er spurður hvort hann telji að hann fái tækifæri í æfingaleikjum Íslands í mánuðinum. Landsliðshópurinn verður tilkynntur á morgun. „En ef ég held áfram á þessari braut sem ég hef verið á þá veit maður aldrei. Það er langt í EM og allt getur gerst.“
Fótbolti Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Valur - ÍBV | Gera fyrrum félagar Hermanns honum skráveifu? Íslenski boltinn Rekinn rétt fyrir HM Fótbolti Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Fleiri fréttir Fram - Keflavík | Bæði leita fyrsta sigursins Breiðablik - ÍA | Spennandi slagur í Kópavogi KR - Þór | Aðrir nýliðar í Vesturbænum KA - Víkingur | Meistararnir á Akureyri Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Valur - ÍBV | Gera fyrrum félagar Hermanns honum skráveifu? Lofsungu Glódísi: „Stolt að geta deilt þessari stund með einstökum leikmanni“ Rekinn rétt fyrir HM Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Búningsklefi FC Basel eyðilagðist í bruna Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Sjá meira