Erlent

Óttast að æ fleiri muni festa sig í handjárnum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Slökkviliðsmenn í London óttast uppákomur eftir frumsýningu Fifty Shades of Grey.
Slökkviliðsmenn í London óttast uppákomur eftir frumsýningu Fifty Shades of Grey.
Slökkviliðsmenn í London óttast að aukning verði í neyðarútköllum frá fólki sem, til dæmis, hefur fest sig í handjárnum og öðrum kynlífstengdum leiktækjum eftir að hafa horft á kvikmyndina Fifty Shades of Grey, sem frumsýnd var víða um heim í þessari viku.

Hinar geysivinsælu skáldsögur eftir rithöfundinn E.L James virðast hafa hvatt fjölmarga til að reyna nýjar leiðir með makanum, stöku sinnum með vandræðalegum og jafnvel sársaukafullum niðurstöðum, segir slökkviliðsmaður í samtali við CNN. Hann bætir við að þeir hafi fundið fyrir verulegri aukningu á slíkum útköllum eftir að fyrsta bók Fifty Shades var gefin út árið 2011.

Frá apríl 2014 hefur slökkviliðið í London kallað úr 393 vegna kynlífsatvika, þar af 28 vegna handjárna. Þeir biðja fólk því um að fara með varkárni, hafi það hug á að krydda upp á samlífið með leiktækjum.

Hér fyrir neðan má sjá stiklu úr myndinni. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×