Fótbolti

Anfield rýmdur eftir að tveir týndust

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Ákveðið var að rýma Anfield, heimavöll enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, í dag eftir að tveir einstaklingar sem voru í skoðunarferð á vellinum týndust.

Talsmaður lögreglunnar í Liverpool sagði að ákveðið hefði verið að rýma völlinn í öryggisskyni.

Rannsókn stendur nú yfir en þess má geta að aðrir gestir í skoðunarferðinni geta nú ekki farið aftur inn á lóðamörk vallarins til að sækja bifreiðir sínar.

Liverpool tekur á móti Bournemouth annað kvöld í ensku deildabikarkeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×