Þrettán ár í dag síðan að Brassar urðu síðast heimsmeistarar | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2015 20:00 Cafu með bikarinn. Vísir/AFP
Brasilíumenn urðu síðast heimsmeistarar í fótbolta á þessum degi, 30. júní, fyrir þrettán árum síðan þegar þeir tryggðu sér sigurinn á HM í Japan og Suður-Kóreu árið 2002. Brasilía vann 2-0 sigur á Þýskalandi í úrslitaleiknum þar sem Ronaldo skoraði bæði mörkin. Ronaldo, sem varð markakóngur keppninnar, skoraði mörkin sín á 67. og 79. mínútu leiksins en í marki Þjóðverja stóð Oliver Kahn. Luiz Felipe Scolari var þjálfari brasilíska liðsins og í byrjunarliðinu voru þeir: Marcos, Lúcio, Edmílson, Roque Júnior, Cafu (fyrirliði), Gilberto Silva, Kléberson, Roberto Carlos, Ronaldinho, Rivaldo og Ronaldo. Juninho og Denílson komu inná sem varamenn. Ronaldo skoraði alls átta mörk í keppninni fyrir þrettán árum en Rivaldo var annar markahæstur með fimm mörk. Ronaldinho skoraði síðan tvö mörk en aðrir í liðinu skoruðu minna. Brasilíumenn hafa ekki unnið heimsmeistaratitilinn síðan. Liðið datt út úr átta liða úrslitunum á HM 2006 og HM 2010 og tapaði síðan 7-1 í undanúrslitum á móti verðandi heimsmeisturum Þjóðverja á HM á heimavelli síðasta sumar. Brassar urðu síðan í fjórða sæti eftir tap á móti Hollandi í leiknum um þriðja sætið. Brasilíumenn duttu út í átta liða úrslitum Suður-Ameríkubikarsins um síðustu helgi eftir tap í vítaspyrnukeppni. Hér fyrir neðan má sjá myndband með helstu atvikunum í þessum úrslitaleik sem fram fór á International Stadium í Yokohama í Japan.
Fótbolti Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Sjá meira