Fann alnöfnu fyrrverandi og býður henni í heimsreisu Atli Ísleifsson skrifar 18. desember 2014 17:52 Elizabeth Gallagher og Jordan Axani. Vísir/AP
Kanadamaðurinn Jordan Axani er búinn að finna eina alnöfnu fyrrverandi kærustu sinnar og munu þau leggja af stað í ferð um heiminn á sunnudaginn. Vísir sagði frá sögu Axani í síðasta mánuði. Hinn 28 ára Toronto-búi Jordan Axani birti auglýsingu á Reddit þar sem hann auglýsti eftir kanadískri konu með nafnið Elizabeth Gallagher til að bókaðir flugmiðar fyrrverandi kærustunnar fari ekki spillis. Þau höfðu ætlað sér að fara í heimsreisu, en hættu saman og gat Axani ekki fengið miða fyrrverandi kærustu sinnar endurgreidda. Brá hann því á það ráð að auglýsa eftir alnöfnu hennar til að fara með honum í þessa skipulögðu heimsreisu. Ferðin hefst á sunnudaginn þar sem þau fljúga frá New York til Milanó. Flogið verður aftur heim til Toronto þann 8. janúar, en á leiðinni munu þau meðal annars koma við í París, Prag, Bangkok og Nýju-Delí. Eftir að Axani birti auglýsinguna á Reddit höfðu átján alnöfnur fyrrverandi kærustu hans með kanadískt vegabréf samband við hann. Nú er hann búinn að velja sér ferðafélaga, hina 23 ára Elizabeth Quinn Gallagher frá Nova Scotia. Í fyrstu þótti Gallagher sú hugmynd að ferðast um með ókunnugum manni sem á fyrrverandi kærustu með sama nafn og hún, vera sturluð. En eftir að hafa rætt við Axani í síma í nokkrar klukkustundir komust þau að því að þau náðu vel saman. Gallagher á sjálf kærasta og viðurkennir fúslega að sá sé ekkert yfir sig hrifinn hugmyndinni. „Við höfum verið lengi saman. Við hugum nú að því að kaupa hús og svo eigum við saman hvolp, svo ég er í raun ekki að leita að einhverju.“ Eftir að saga Axani komst í heimsfréttirnar hefur Marriott hótelkeðjan samþykkt að bjóða þeim Axani og Gallagher tvö herbergi á öllum hótelum þeirra í ferðinni.
Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Innlent „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Innlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Erlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Innlent Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Erlent Fleiri fréttir „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Sjá meira